Staðfesting á komu til heilbrigðisveitenda
Í samningum Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og veitenda heilbrigðisþjónustu er almennt kveðið á um að sjúklingar/notendur þjónustu skuli staðfesta hverja komu með undirskrift sinni. Sama gildir þegar þjónusta er veitt á grundvelli reglugerðar og gjaldskrár og við afhendingu lyfja, hjálpartækja og næringarefna.
Í ljósi þess að Almannavarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna Covid-19 telja SÍ rétt að veita tímabundna undanþágu frá kröfu um staðfestingu notenda vegna mögulegrar smithættu.
Í Réttindagátt SÍ á www.sjukra.is geta notendur m.a. séð yfirlit um komur til lækna / sjúkraþjálfara og afhentar vörur / lyf eða tæki frá einstökum aðilum.