Notum rafrænar leiðir
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) benda viðskiptavinum á rafrænar samskiptaleiðir við stofnunina.
Í Réttindagátt - Mínar síður á vef SÍ geta einstaklingar skilað inn gögnum til SÍ á öruggan hátt. Þar er hægt að skila inn flest öllum gögnum, m.a. útfylltum eyðublöðum (Eyðublöð og vottorð).
Hér má kynna sér leiðbeiningar fyrir skil á gögnum í gegnum Réttindagáttina (PDF skjal)
Hægt er að senda fyrirspurnir með tölvupósti á netfangið sjukra@sjukra.is eða beint til viðeigandi málaflokks, sjá meðfylgjandi netfangalista.
Áfram er hægt er að skila inn gögnum á pappír í skilakassa í anddyri SÍ á Vínlandsleið 16.
Símsvörun stofnunarinnar er alla virka daga milli kl. 10:00 og 15:00 í síma 515-0000.
Á vef Sjúkratrygginga www.sjukra.is er að finna allar nauðsynlegar upplýsingar er varða málaflokka SÍ. Einnig er bent á Spurt og svarað þar sem algengum spurningum er svarað á aðgengilegan hátt.
Deild | Netföng |
Almennar upplýsingar | sjukra@sjukra.is |
Alþjóðamál | international@sjukra.is |
Einnota vörur | einnota@sjukra.is |
Ferðakostnaður | ferdakostnadur@sjukra.is |
Lyf | lyfjadeild@sjukra.is |
Læknareikningar | laeknareikningar@sjukra.is |
Næring | naering@sjukra.is |
Sjúklingatrygging | sjuklingatrygging@sjukra.is |
Sjúkradagpeningar | dagpeningar@sjukra.is |
Slysatryggingar | slys@sjukra.is |
Stoðtæki | stodtaeki@sjukra.is |
Tannlækningar | tannmal@sjukra.is |
Tæknileg hjálpartæki | hjalpart@sjukra.is |
Þjálfun | thjalfun@sjukra.is |