Hvað bætir sjúklingatrygging?
Tjón á grundvelli sjúklingatryggingar er bætt samkvæmt skaðabótalögum:
- Varanlegt tjón: Örorka og miski.
- Tímabundið tjón: Þjáningabætur og tímabundið atvinnutjón.
- Útlagður kostnaður vegna atviksins.
Samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu er tjón þó aðeins bætt ef tilteknu lágmarkstjóni er náð (kr. 116.057 fyrir tjón sem verður á árinu 2021) og auk þess er hámark á greiddum bótum (kr. 11.605.731 fyrir tjón sem verður á árinu 2021). Þessar upphæðir eru uppfærðar árlega og hækka í samræmi við vísitölu neysluverðs.
Vegna heilsutjóns sem fellur undir eldra ákvæði í lögum um almannatryggingar greiðist:
- Nauðsynleg sjúkrahjálp. Meðal annars fyrir læknishjálp, sjúkraþjálfun, lyf og fleira.
- Slysadagpeningar frá og með 8. degi eftir atvikið (sé sjúklingur ekki á launaskrá) og hafi sjúklingur verið óvinnufær í minnst 10 daga.
- Örorkubætur, ef varanleg örorka er metin meira en 10%.
Þó er ekki heimilt að greiða dagpeninga eða sjúkrahjálp lengra en tvö ár aftur í tímann frá því að Sjúkratryggingum Íslands barst tilkynning um atburðinn.
- Tilvísun Skaðabótalög nr. 50/1993