Lyf
Þrepaskipt greiðsluþátttaka
Greiðsluþátttökukerfið vegna lyfjakaupa byggir á þrepaskiptri greiðsluþátttöku þar sem hver einstaklingur greiðir hlutfallslega minna eftir því sem lyfjakostnaður hans eykst innan tólf mánaða tímabils. Í fyrsta þrepi greiðir einstaklingurinn lyf að fullu, í öðru þrepi greiðir hann 15% af verði lyfja og í þriðja þrepi greiðir hann 7,5%. Þegar lyfjakostnaður hefur náð ákveðnu hámarki fær hann lyf að fullu greidd af sjúkratryggingum það sem eftir er af tímabilinu.
Öll lyf sem SÍ taka þátt í að greiða (þar með talin lyf sem einstaklingur hefur fengið samþykkt lyfjaskírteini fyrir) falla inn í greiðsluþrepin. Þau lyf sem SÍ taka ekki þátt í að greiða, falla utan greiðsluþrepanna.
Tólf mánaða greiðslutímabilið hefst við fyrstu lyfjakaup einstaklingsins. Ef hann kaupir t.d. lyf í fyrsta sinn 15. okt. 2014 þá lýkur tímabilinu 15. okt. 2015. Nýtt tímabil hefst þegar viðkomandi kaupir lyf í fyrsta sinn eftir að framangreindu tímabili lýkur.
Lyfjareiknivél reiknar út lyfjakostnað
Með Lyfjareiknivélinni er hægt að reikna út áætlaðan lyfjakostnað miðað við innslegnar forsendur.
Skoðaðu stöðu lyfjakaupa í Réttindagátt
í Réttindagátt - mínar síður er hægt að sjá yfirlit yfir lyfjakaup og þrepastöðu. Innskráning fer fram með íslykli eða rafrænum skilríkjum.Þegar innskráningu er lokið smellið á flokkinn "Réttindastaðan mín" og síðan "Lyfjakaup - þrepastaða". Sjá leiðbeiningar.
Lyfjaskírteini
Sjúkratryggingar Íslands hafa heimild til að gefa út lyfjaskírteini sem veita greiðsluþátttöku í lyfjum sem annars eru ekki með greiðsluþátttöku. Læknir getur sótt um lyfjaskírteini fyrir einstakling að uppfylltum skilyrðum samkvæmt vinnureglum.
Endurgreiðslur vegna mikils lyfjakostnaðar
Einstaklingar/fjölskyldur með umtalsverðan kostnað vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar geta átt rétt á endurgreiðslu kostnaðar að hluta. Sjá á vef Tryggingastofnunar
- Tilvísun Reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði nr. 313/2013
- 1. breyting á reglugerð 313/2013
- 2. breyting á reglugerð 313/2013
- 3. breyting á reglugerð 313/2013
- 4. breyting á reglugerð 313/2013
- 5. breyting á reglugerð 313/2013
- Reglugerð um endurgreiðslu á umtalsverðum kostnaði við læknishjálp, lyf og þjálfun
- Tengt efni Vinnureglur fyrir lyfjaskírteini
- Tengt efni Fréttabréf lyfjadeildar
- Tengt efni Evrópska sjúkratryggingakortið