Túlkaþjónusta fyrir sjúkratryggða einstaklinga.
Túlkaþjónusta fyrir sjúkratryggða einstaklinga.
Frá og með 1. janúar 2016 greiða Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) fyrir túlkaþjónustu sjúkratryggðra einstaklinga.
Listi yfir einstaklinga sem veita túlkaþjónustu má finna á heimasíðu Ríkiskaupa.
Einstaklingur sem er sjúkratryggður á Íslandi á rétt á túlkaþjónustu.
- Túlkaþjónustan er ætluð einstaklingi sem þarf aðstoð við að skilja upplýsingar um heilsufar sitt og þá heilbrigðisþjónustu sem hann þarf á að halda.
- Skilyrði er að heilbrigðisstarfsmaður meti nauðsyn á túlkaþjónustu ef einstaklingur talar ekki íslensku eða notar táknmál.
- Heilbrigðisstarfsmaður skal skipuleggja notkun túlkaþjónustu á eins hagkvæman hátt og kostur er.
- Túlkaþjónustan getur farið fram í gegnum símtæki, fjarbúnað eða á staðnum.
- Túlkaþjónustan skal valda einstaklingi sem minnstum óþægindum og skal panta túlk fyrirfram ef ljóst er að einstaklingur skilur ekki íslensku eða notar táknmál.
- Sjúkratryggingar Íslands greiða eingöngu fyrir túlkaþjónustu sem fer fram hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðisveitendum. Stofnanir og heilsugæslur greiða fyrir túlkaþjónustu sem fer fram þar.
Túlkun fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta annast Samskiptamiðstöð , sbr. lög nr. 129/1990 um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskerta .
Greiðsla vegna túlkaþjónustu
Túlkur sendir reikning til SÍ, mánaðarlega, vegna veittrar þjónustu ásamt staðfestingu frá viðkomandi heilbrigðisstarfsmanni um nauðsyn túlks fyrir einstaklinginn. Reikninga skulu sendir til: Sjúkratrygginga Íslands, b.t.; Sjúkraþjónustudeildar, Læknareikningar, Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík.
- Ef nauðsynlegt er að fá túlk inn á stofnun, fellur sá kostnaður á viðkomandi stofnun.
- Ef túlkaþjónusta er nauðsynleg fyrir ósjúkratryggðan einstakling fellur sá kostnaður á hann sjálfan.
- Reglugerð nr. 1145/2015 um túlkun á upplýsingum um heilsufar og meðferð fyrir sjúklinga sem ekki tala íslensku eða sem nota táknmál hjá heilbrigðisstarfsmönnum má finna á eftirfarandi slóð; http://www.sjukra.is/um-okkur/log-og-reglugerdir/ .
Túlkaþjónustur sem eru á rammasamningi Ríkiskaupa