Hafa samband við Sjúkratryggingar Íslands

Sjúkratryggingar Íslands og Tryggingastofnun ríkisins reka sameiginlega afgreiðslu, þjónustu og upplýsingagjöf við viðskiptavini sína.

Sími

Aðalnúmer er 515 0000.

Hægt er að tala við þjónusturáðgjafa í síma frá kl. 10:00 - 15:30 alla virka daga. Viðskiptavinum er veitt öll sú þjónusta sem unnt er að veita gegnum síma og varða sjúkratryggingar. Skiptiborð er opið frá kl. 10:00-16:00.

Líttu við

Þjónustumiðstöð

Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar er á horni Laugavegs og Snorrabrautar, rétt hjá Hlemmi.

Sjá á korti.

Afgreiðslutíminn er frá 10:00 - 15:30 virka daga.

Hjálpartæki

Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands sér um afgreiðslu hjálpartækja:

Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík. Sjá á korti
Sími: 515 0100

Afgreiðslutími frá 10:00 - 15:30 virka daga.

Umboð / Sýsluskrifstofur

Hér er að finna lista yfir umboðsskrifstofur Sjúkratrygginga Íslands á landsbyggðinni

Þjónustunetfangið er sjukra@sjukra.is

Þangað er hægt að senda allar almennar fyrirspurnir.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á tiltekna málaflokka:

Þjónustumiðstöðin sér um:

  • Móttöku læknareikninga vegna endurgreiðslu og afsláttarkorts.
  • Móttöku tannlæknareikninga vegna endurgreiðslu. Viðskiptavinir geta sent frumrit kvittana í pósti og fengið endurgreiðsluna inn á bankareikning sinn. Með þessu fyrirkomulagi geta viðskiptavinir sparað sér sporin og notið um leið góðrar þjónustu.
  • Útgáfu evrópska sjúkratryggingakortsins. Hægt er að sækja um það á vef SÍ og fá kort fyrir sig og sína sent heim. Einnig má sækja um kortið í þjónustumiðstöð og sækja það þangað.

 

Sjúkratryggingar Íslands og Tryggingastofnun reka sameiginlega þjónustu, afgreiðslu og upplýsingagjöf

Þann 1. október 2008 tóku Sjúkratryggingar Íslands við réttindum og skyldum Tryggingastofnunar ríkisins að því er varðar framkvæmd sjúkratrygginga og slysatrygginga skv. almannatryggingalögum, sbr. III. bráðabirgðaákvæði laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og skv. lögum nr. 111/2000, um sjúklingatryggingu.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica