Störf í boði

2 tryggingafulltrúar - erlend málefni

 

Sjúkratryggingar Íslands auglýsa laus til umsóknar tvö full störf í deild Heilbrigðismála á Tryggingasviði stofnunarinnar.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi störf í starfseiningu þar sem einkum er fjallað um tryggingaréttindi einstaklinga og greiðslu erlends sjúkrakostnaðar.

Helstu verkefni:

  • Ákvarðanataka um tryggingaréttindi einstaklinga
  • Gagnaöflun og afgreiðsla umsókna vegna erlends sjúkrakostnaðar
  • Samskipti við erlendar sjúkra- og tryggingastofnanir
  • Símsvörun og almenn upplýsingagjöf
  • Ýmis sérverkefni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Færni í vinnslu tölulegra upplýsinga
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð tungumálakunnátta, sérstaklega enska
  • Færni í bréfaskriftum, bæði á íslensku og ensku
  • Góð tölvukunnátta
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi
  • Vönduð og áreiðanleg vinnubrögð
  • Lipurð í samskiptum og rík þjónustulund

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf hið fyrsta.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur er til og með  3. júní 2012.

Umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá berist starfsmannaþjónustu Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 116-118, 150 Reykjavík rafrænt  á starf@sjukra.is eða í pósti. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Halla Björk Erlendsdóttir, deildarstjóri Heilbrigðisþjónustu í síma 515-0000.

Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.sjukra.is

 

----------------------------------------

Tryggingafulltrúi - sérfræðilæknaþjónusta

Sjúkratryggingar Íslands auglýsa laust til umsóknar fullt starf í deild Heilbrigðismála á Tryggingasviði stofnunarinnar.

Um er að ræða starf í starfseiningu þar sem einkum eru afgreiddir reikningar til lækna og fleiri heilbrigðisstarfsmanna.  

Helstu verkefni:

  • Endurskoðun, skráning og afgreiðsla reikninga
  • Eftirlit með innsendum rafrænum tölvuskrám
  • Almenn upplýsingamiðlun
  • Bréfaskriftir og úrvinnsla á töflum og skrám

 

Menntun og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun og reynsla
  • Færni í vinnslu tölulegra upplýsinga
  • Góð kunnátta í Word og Excel
  • Vönduð og áreiðanleg vinnubrögð
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi

 

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf hið fyrsta.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2012.

Umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá berist starfsmannaþjónustu Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 116-118, 150 Reykjavík, rafrænt  á starf@sjukra.is eða í pósti.  Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Halla Björk Erlendsdóttir, deildarstjóri Heilbrigðisþjónustu, í síma 515-0000.

Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar http://www.sjukra.is/

----------------------------------------------


Sviðsstjóri viðskiptasviðs


Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) óska eftir að ráða í stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs.

Sviðsstjóri heyrir beint undir forstjóra stofnunarinnar. Sviðsstjóri er formaður aðalsamninganefndar SÍ og situr sviðsstjórafundi ásamt forstjóra og öðrum sviðsstjórum.

Starfssvið:

  • Yfirumsjón með starfsemi viðskiptasviðs og ábyrgð á starfsemi sviðsins gagnvart forstjóra
  • Ábyrgð á undirbúningi og gerð samninga við innlenda og erlenda þjónustuveitendur
  • Málefni lyfjadeildar SÍ
  • Þátttaka í stefnumótun, endurmat og þróun skipulags og vinnuferla
  • Stefnumarkandi áætlanagerð
  • Gerð fjárhagsáætlunar fyrir rekstur sviðsins og eftirfylgni
  • Seta í kostnaðarnefnd S-lyfja og samráðsnefnd SÍ og LSH
  • Skýrslugerðir og miðlun upplýsinga
  • Önnur verkefni sem forstjóri felur honum hverju sinni að svo miklu leyti sem þau samrýmast starfssviði hans, menntun og þekkingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun og rekstri
  • Reynsla af starfi innan stjórnsýslunnar er æskileg
  • Reynsla af stefnumótun og þróun eininga æskileg
  • Skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði, staðfesta og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Leiðtogahæfileikar, jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni

Sjúkratryggingar Íslands annast framkvæmd sjúkratrygginga ásamt því að semja um og greiða fyrir heilbrigðisþjónustu. Markmið stofnunarinnar eru að gæta réttinda sjúkratryggðra, tryggja aðstoð til verndar heilbrigði óháð efnahag og stuðla að hagkvæmni og hámarksgæðum í heilbrigðisþjónustu. Hjá stofnuninni starfar öflugur og reyndur hópur fólks við margþætta þjónustu. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og starfsandi góður. Nánari upplýsingar um stofnunina eru á http://www.sjukra.is/

Umsjón með umsóknarferlinu hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Silja Jóhannesdóttir (silja.johannesdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.

Umsóknarfrestur er til og með 29. maí nk.

Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, http://www.capacent.is/.

Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.


-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Öll störf eru auglýst á www.starfatorg.is


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica