Störf í boði
Iðjuþjálfi/Sjúkraþjálfari
Sjúkratryggingar Íslands óska eftir að ráða iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara í hjálpartækjamiðstöð á Þjónustu- og afgreiðslusviði stofnunarinnar á Vínlandsleið 16.
Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í góðu vinnuumhverfi.
Helstu verkefni:
- Veita ráðgjöf um tæknileg hjálpartæki
- Meta þörf fyrir tæknileg hjálpartæki
- Afgreiða tæknileg hjálpartæki samkvæmt gildandi reglugerð
- Taka þátt í fræðslu o.fl.
Hæfniskröfur:
- Próf í iðjuþjálfun eða sjúkraþjálfun frá skóla viðurkenndum af Heimssamtökum iðjuþjálfa (WFOT) eða Heimssamtökum sjúkraþjálfara (WCPT) með íslenskt starfsleyfi og löggildingu
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi ásamt hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi
- Nákvæmni í starfi og skipulögð vinnubrögð
- Gott vald á íslenskri tungu
- Æskilegt að hafa vald á dönsku, norsku eða sænsku
- Æskilegt að starfsmaður hafi starfsreynslu sem iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari
Ósk um að starfsmaður geti hafið störf hið fyrsta.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi IÞÍ eða SSÞ og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2012.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björk Pálsdóttir, sviðsstjóri eða Júlíana Hansdóttir Aspelund, deildarstjóri hjálpartækjamiðstöðvar í síma 515 0100.
Umsókn ásamt ítarlegri ferilskrá skal senda starfsmannaþjónustu Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114-118, 150 Reykjavík, rafrænt á starf@sjukra.is eða í pósti. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Upplýsingar um stofnunina má finna á vefsíðu hennar www.sjukra.is
------------------------
Verkefnastjóri
Sjúkratryggingar Íslands auglýsa laust til umsóknar fullt starf í alþjóðamálum í deild Heilbrigðismála á Tryggingasviði stofnunarinnar.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í starfseiningu þar sem einkum eru afgreidd mál einstaklinga sem snúa að tryggingaréttindum.
Helstu verkefni:
- Verkefnastjórnun, skipulagning og umsjón með afgreiðslu erlendra málefna
- Ákvarðanataka um tryggingaréttindi einstaklinga
- Afgreiðsla umsókna vegna erlends sjúkrakostnaðar o.fl.
- Gagnaöflun vegna erlends sjúkrakostnaðar o.fl.
- Kostnaðarútreikningar og ýmsar tölulegar úttektir
- Samskipti við erlendar sjúkra- og tryggingastofnanir
- Símsvörun og almenn upplýsingagjöf
- Ýmis sérverkefni
Menntun og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Einstaklingur verður að eiga auðvelt með að vinna með tölulegar upplýsingar
- Góð íslenskukunnátta og færni í bréfaskriftum
- Góð tungumálakunnátta, gott vald á ensku og norðurlandamáli og þriðja tungumál er kostur
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi
- Vönduð og áreiðanleg vinnubrögð
- Lipurð í samskiptum og rík þjónustulund
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf hið fyrsta.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar n.k.
Umsóknir ásamt ítarlegri ferilskrá berist starfsmannaþjónustu Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114, 150 Reykjavík, rafrænt á starf@sjukra.is eða í pósti. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halla Björk Erlendsdóttir, deildarstjóri Heilbrigðisþjónustu í síma 515-0000.
Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar: www.sjukra.is
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Öll störf eru auglýst á www.starfatorg.is



