Spurt og svarað: Afsláttarkort
Afsláttarkort
Ef þú ert sjúkratryggður og hefur greitt ákveðna upphæð (sjá töflu að neðan) fyrir heilbrigðisþjónustu átt þú rétt á afsláttarkorti. Ef þú ert með afsláttarkort greiðir þú minna fyrir heilbrigðisþjónustu.
| Hverjir greiða |
Hversu mikið |
|---|---|
| Sjúkratryggðir 18-66 ára almennt |
29.500 kr. |
| Aldraðir 67 til og með 69 ára sem eru með skertan eða engan ellilífeyri |
23.600 kr. |
|
- Aldraðir 70 ára og eldri - Þeir 60 til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri - Öryrkjar - Aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs |
7.400 kr. |
| Öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu |
8.900 kr. |
Ekki þarf lengur að koma með eða senda læknareikninga af heilsugæslustöðvum eða spítölum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi, aðrar heilbrigðisstofnanir hefja rafræna útsendingu á næstu vikum og mánuðum. Læknareikningar frá þeim heilbrigðisstofnunum sem enn eru fyrir utan rafræna útsendingu þarf einstaklingur að koma sjálfur með eða senda inn. Samt sem áður er hægt að koma með alla reikninga hingað eins og áður og fá afsláttarkortið sitt sent til sín innan viku. Til þess að fá afsláttarkort eru frumrit/eintak sjúklings reikninga nauðsynleg.
Ef einstaklingar hafa greitt umfram ofangreind hámörk og eru ekki enn komnir með afsláttarkort, endurgreiðir SÍ að hluta til það sem þeir hafa greitt umfram þá upphæð. Endurgreiðslur verða lagðar beint inn á bankareikninga einstaklinga. Áríðandi er að geyma allar kvittanir þó svo reikna megi með að þeir berist rafrænt til SÍ.
Hver er tilgangur afsláttarkorts?
Afsláttarkort gefur aukinn afslátt af læknisþjónustu. Þegar fólk notar kortið hjá lækni greiðir SÍ samkvæmt einingaverði sem fer eftir umfangi læknisverks. Afsláttur getur því verið mismunandi.



