Spurt og svarað: Afsláttarkort
Afsláttarkort
| Hverjir greiða |
Hversu mikið |
|---|---|
| Einstaklingar 18-66 ára -og atvinnulausir skv. vottorði frá Vinnumálastofnun |
27.000 kr. |
| Aldraðir 67 til og með 69 ára sem eru með skertan eða engan ellilífeyri |
21.500 kr. |
| Aldraðir 70 ára og eldri -þeir 60 til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri -öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs |
6.500 kr. |
| Öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu |
8.100 kr. |
Koma þarf með eða senda læknareikninga af heilsugæslustöðvum eða spítölum öðrum en Landspítala, til Sjúkratrygginga Íslands eða umboða um allt land. Aftur á móti koma flestir sérfræðireikningar af læknastofum sjálfkrafa til SÍ og allflestir reikningar frá Landspítala í Reykjavík utan röntgendeildar. Samt sem áður er hægt að koma með alla reikninga hingað eins og áður og fá afsláttarkortið sitt sent til sín innan viku. Til þess að fá afsláttarkort eru frumrit/eintak sjúklings reikninga nauðsynleg.
Ef einstaklingar hafa greitt umfram ofangreind hámörk og eru ekki enn komnir með afsláttarkort, endurgreiðir SÍ að hluta til það sem þeir hafa greitt umfram þá upphæð. Endurgreiðslur verða lagðar beint inn á bankareikninga einstaklinga. Áríðandi er að geyma allar kvittanir þó svo reikna megi með að þeir berist rafrænt til SÍ.
Hver er tilgangur afsláttarkorts?
Afsláttarkort gefur aukinn afslátt af læknisþjónustu. Þegar fólk notar kortið hjá lækni greiðir SÍ samkvæmt einingaverði sem fer eftir umfangi læknisverks. Afsláttur getur því verið mismunandi.



