Kæruleiðir
Ef einstaklingur er ósáttur við úrskurð Sjúkratrygginga Íslands er honum velkomið að kæra hann til úrskurðarnefndar almannatrygginga.
Til úrskurðarnefndar almannatrygginga er hægt að kæra ágreining sem rís um grundvöll, skilyrði og upphæð bóta.
Í þjónustumiðstöð Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar að Laugavegi 114 og hjá umboðsmönnum um land allt liggja frammi eyðublöð til að kæra. Starfsmenn eru reiðubúnir að aðstoða við útfyllingu þeirra.
- Tengt efni: Vefur úrskurðarnefndar
- Tengt efni: Leiðbeiningar um kæruferli - upplýsingar á vef úrskurðarnefndar
- Næsta skref: Eyðublað úrskurðarnefndar



