sjukra.is er 6. besti vefur ríkisins
Vefur Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is hafnaði í 6. sæti í úttekt á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga fyrir árið 2011 með einkunnina 87 af 100. Í úttektinni tóku 267 stofnanir þátt á vegum ríkis og sveitarfélaga.
Þetta kom í ljós á ráðstefnu Ský sem haldin var á Grand hótel 18. janúar sl. en innanríkisráðuneytið, þjóðskrá og Deloitte stóðu að könnuninni sem gerð er annað hvert ár og er þetta í fjórða skiptið sem hún fer fram..
Einkunnagjöf felur í sér hversu vel vefir uppfylla skilyrði er varða fjóra þætti: innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu.
Þetta er í fyrsta skipti sem SÍ tekur þátt í þessari könnun, en vefurinn fór í loftið í byrjun árs 2010.
Þess má geta að vefur Tryggingastofnunar var valinn besti vefurinn af sérstakri dómnefnd sem valdi úr 5 efstu vefjunum. Til hamingju Tryggingastofnun!




