Samningur við tannlækna um forvarnarskoðun barna framlengdur
Gildistími rammasamnings Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og þeirra tannlækna sem eftir honum starfa, hefur verið framlengdur til loka árs 2012.
Samningurinn kveður á um að þriggja, sex og tólf ára börn fái forvarnarskoðun hjá tannlækni sér að kostnaðarlausu. Lista yfir þá tannlækna sem enn eru aðilar að samningnum má nálgast hér að neðan.
Forráðamenn viðkomandi barna eru hvattir til þess að nýta rétt þeirra til þjónustunnar og hafa samband við tannlækna á listanum.




