Breytingar á gjaldskrám vegna heilbrigðisþjónustu um áramót

28.12.2011

  • SjukratryggingarMerki_skja

Gjöld sem sjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu breytast um áramótin en skv. vef velferðarráðuneytisins munu þau hækka að jafnaði um 5,3% í samræmi við áætlun fjárlaga um hækkun sértekna stofnana og þar með vegna verðlags- og gengisbreytinga. Komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjald fyrir vitjanir heilsugæslulækna verða óbreytt.

Þann 1. janúar næstkomandi taka gildi eftirfarandi breytingar:

  • Heilsugæsla: Þrátt fyrir að gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu hækki að jafnaði um 5,32% verða komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjöld fyrir vitjanir heilsugæslulækna óbreytt. Börn yngri en 18 ára greiða ekkert fyrir komu á heilsugæslustöð líkt og verið hefur. Með þessu er lögð áhersla á mikilvægi heilsugæslunnar á sviði grunnþjónustu og sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu.
  • Afsláttarkort vegna heilbrigðisþjónustu: Hámarksviðmið sem greiða þarf til þess að öðlast afsláttarkort á almanaksárinu hækkar og verður sem hér segir:
Sjúkratryggðir 18-66 ára almennt 29.500kr.
Aldraðir 67 til og með 69 ára sem eru með skertan eða engan ellilífeyri 23.600 kr.

- Aldraðir 70 ára og eldri

- Þeir 60 til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri

- Öryrkjar

- Aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs



7.400 kr
.
Öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu 8.900 kr.
  • Tæknifrjóvgun:  Frá næstu áramótum munu barnlaus pör og einhleypar barnlausar konur greiða að fullu kostnað vegna fyrstu meðferðar við tæknifrjóvgun. Þurfi fólk á fleiri meðferðum að halda greiða Sjúkratryggingar Íslands sem nemur 65% kostnaðar samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar fyrir aðra, þriðju og fjórðu meðferð.  Auk þessa er afnumin greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgunarmeðferðar hjá pörum eða einhleypum konum sem eiga eitt barn fyrir en hún hefur til þessa numið 15% kostnaðar samkvæmt gjaldskrá.
  • Sjúkra- iðju- og talþjálfun: Gjöld sjúkratryggðra fyrir þjálfun sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða hækkar um þrjú prósentustig (4-15%) fyrir fyrstu 30 skiptin hjá þjálfara. Kostnaður vegna meðferðar sem samþykki hefur verið veitt fyrir umfram 30 skipti hækkar ekki frá því sem nú er.

  • Sjúkraflutningar: Kostnaður sjúkratryggðra fyrir sjúkraflutninga hækkar um 7,2%, úr 5.130 kr. í 5.500 kr. Þurfi sjúkratryggður sem liggur á sjúkrahúsi eða heilbrigðisstofnun á sjúkraflutningi að halda greiðir viðkomandi stofnun fyrir flutninginn.
  • Sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar: Reiknaður kostnaðarhluti sjúkratryggðra, vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, hækkar um 5,32%.
  • Lyf: Greiðsluþátttaka í kostnaði vegna lyfja sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða hækkar um 5,32%. Sjá nákvæmari upplýsingar um þátttöku SÍ í neðangreindu skjali.
  • Kostnaður þeirra sem ekki eru sjúkratryggðir: Almennt munu greiðslur þeirra sem ekki eru sjúkratryggðir hækka um 5,32% fyrir heilbrigðisþjónustu frá áramótum. Þetta á þó ekki við um kostnað þeirra vegna sjúkraflutninga sem færist nær raunkostnaði. Fyrir hverja byrjaða klukkustund hækkar gjaldið úr 8.800 krónum í 35.000 kr. Gjald til eiganda sjúkrabifreiðar (Rauða kross Íslands) hækkar úr 660 krónum í 2.000 kr. fyrir hvern ekinn kílómetra en sjúklingur greiðir alltaf að lágmarki fyrir 15 kílómetra.
  • Sjúkra- og slysadagpeningar hækka auk dánarbóta.

Reglugerðir um breytingarnar:

  • Nr. 1249/2011 Auglýsing um (1.) breytingu á gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands, nr. 703/2010, fyrir tannlækningar sem ekki hefur verið samið um skv. IV. kafla laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar.
  • Nr. 1233/2011Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2012.
  • Nr. 1226/2011 Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1025/2008, um sjúkradagpeninga
  • Nr. 1186/2011 Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 721/2009 um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun.
  • Nr. 1176/2011 Reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og greiðslur þeirra fyrir heilbrigðisþjónustuna.
  • Nr. 1175/2011 Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.
  • Nr. 1170/2011 Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 403/2010, um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum.
  • Nr. 1169/2011 Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 333/2011 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
  • Nr. 1168/2011 Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 698/2010 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar.
  • Nr. 1167/2011 Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 917/2011 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

Gjaldskrár



 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica