Nýjar reglugerðir um tannlækningar og brýna læknismeðferð erlendis

6.9.2010

Heilbrigðisráðherra hefur undirritað tvær reglugerðir, annars vegar reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar og hins vegar reglugerð um brýna læknismeðferð erlendis. Markmiðið er að einfalda og samræma eldri reglugerðir.

Reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði vegna tannlækninga tekur gildi 15. september nk. en reglugerð um brýna læknismeðferð erlendis tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Þær munu fljótlega birtast í Stjórnartíðindum.

 

Ítarefni (tekið af vef heilbrigðisráðuneytis):

Reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar

Helsta breytingin sem reglugerðin hefur í för með sér er einföldun, þar sem ein reglugerð mun gilda á þessu sviði í stað fjögurra áður.  Réttindi sjúkratryggðra verða að mestu óbreytt en þó eru gerðar ákveðnar breytingar, svo sem að miðað sé við tennur framan við endajaxla í stað tólfárajaxla og að ekki þurfi að sækja sérstaklega um fóðrun blóðgóma. Þá er í reglugerðinni kveðið á um styrkveitingu sjúkratrygginga vegna kostnaðar við almennar tannréttingar og um gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands þegar samningar við tannlækna eru ekki fyrir hendi.

Reglugerð um brýna læknismeðferð erlendis

Reglugerðin kemur í stað þriggja eldri reglugerða um brýna læknismeðferð erlendis þegar ekki  er unnt að veita nauðsynlega aðstoð hér á landi, sem og um ferðastyrki vegna meðferðarinnar.

Í reglugerðinni er kveðið á um skilyrði fyrir greiðsluþátttöku í brýnni læknismeðferð erlendis þegar ekki er unnt að veita nauðsynlega aðstoð hér á landi. Í slíkum tilfellum greiða Sjúkratryggingar Íslands kostnað við meðferðina, en skilyrði er að meðferðin sé alþjóðlega viðurkennd og byggist á gagnreyndri þekkingu á sviði læknisfræði.

Þá eru settar reglur um málsmeðferð og val á meðferðarstað, auk reglna um komu sérgreinalækna til landsins. Einnig er kveðið á um greiðslu ferðastyrks, þ.e. fargjalds og dagpeninga, og skilyrði fyrir greiðslu ferðastyrks til fylgdarmanna.

Loks eru  í reglugerðinni sérákvæði um sérstakt sjúkraflug og tæknifrjóvgun erlendis.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica