Ný stjórn Sjúkratrygginga Íslands fundar

Frá fyrsta fundi stjórnar 2. september 2010. Frá vinstri: Kristinn H. Gunnarsson, Garðar Mýrdal, Dagný Brynjólfsdóttir, formaður, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir og Jóhannes Pálmason.
Um stjórnarskiptin kemur eftirfarandi fram á vef heilbrigðisráðuneytisins:
"Fyrri stjórn Sjúkratrygginga var skipuð 28. janúar 2008 skv. ákvæði til bráðabirgða við lög nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu.
Var stjórninni í skipunarbréfi falið að taka þátt í undirbúningsvinnu við að koma hinni nýju stofnun á fót. Jafnframt var tilgreint að henni yrði sett erindisbréf þegar ný löggjöf um stofnunina hefði tekið gildi. Lög um sjúkratryggingar nr. 112/2008, þar sem kveðið er á um starfsrækslu Sjúkratryggingastofnunar, tóku gildi 1. október 2008. Fyrrgreint erindisbréf stjórnar Sjúkratrygginga hefur þó ekki verið sett og hefur stjórnin starfað án erindisbréfs.
Mat heilbrigðisráðuneytisins var að tímabært væri að skipa stofnuninni stjórn til frambúðar í samræmi við 6. gr. laga um sjúkratryggingar nr. 112/2008.
Helstu verkefni stjórnar Sjúkratrygginga eru að staðfesta skipulag stofnunarinnar, útbúa árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu. Skal stjórnin hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar og greiðslur vegna sjúkratryggðra séu innan ramma fjárlaga á hverjum tíma."




