Hækkun hjá sérfræðilæknum
Sérfræðilækniskostnaður hækkaði um 1,9% þann 1. júní sl. samkvæmt samningi sérfræðilækna við heilbrigðisráðuneytið.
Hækkunin hefur þau áhrif að hlutur sjúklinga hækkar að meðaltali um 1,2%. Þó er hækkunin nokkuð minni hjá börnum, öldruðum og öryrkjum.
Heilbrigðisráðuneytið mun leita annarra leiða til að draga úr kostnaði vegna sérfræðiþjónustu og væntir þess að unnt verði að hafa samráð við sérfræðilækna um útfærslu þeirra aðgerða.
- Ný tafla um komugjöld til sérfræðilækna (undir „Komugjöld til klínískra sérfræðinga“)
- Frekari upplýsingar um hækkunina má sjá á vef heilbrigðisráðueytisins




