ES kortið – fyrir ferðalagið í sumar!
Nú eru eflaust margir á leið til útlanda. Þeir sem ferðast í Evrópu og eru sjúkratryggðir á Íslandi eiga rétt á að fá nauðsynlega opinbera læknisþjónustu á sömu kjörum og íbúar evrópulandsins. Til þess þarf að að framvísa evrópska sjúkratryggingaskírteininu sem gefið er út af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Mikilvægt er að einstaklingar afli sér upplýsinga um tryggingar sínar hjá hinu opinbera og hjá tryggingafélögum áður en haldið er af stað erlendis.
Evrópa
Ef einstaklingur sem sjúkratryggður er á Íslandi veikist eða slasast á ferðalagi í öðru EES-landi og þarf á læknishjálp að halda á hann rétt á að fá þjónustuna á sömu kjörum og íbúar þess lands sem hann er staddur í. Þetta gildir þó aðeins um þær sjúkrastofnanir og læknastofur sem starfa innan eða hafa samninga við opinbera sjúkratryggingakerfið í viðkomandi landi. Þá er það skilyrði að ferðamaðurinn framvísi evrópska sjúkratryggingaskírteininu (smellið á hlekkinn).
Lönd utan Evrópu
Þeir sem eru að ferðast til landa utan Evrópu geta fengið sérstaka tryggingayfirlýsingu hjá SÍ. Almenna reglan er þó sú að ef þörf er á læknisaðstoð þarf viðkomandi að leggja sjálfur út fyrir sjúkrakostnaðinum og gæta þess að halda til haga greiðslukvittun og sundurliðuðu frumriti reiknings. Síðan er unnt að sækja um endurgreiðslu að hluta til SÍ. Sækja þarf um yfirlýsinguna á eyðublaðinu „Dvöl erlendis – beiðni um tryggingaryfirlýsingu" á vef SÍ, fylla það út og koma því til þjónustumiðstöðvar, Laugavegi 114, 105 Reykjavík.
Athugið að einungis er endurgreitt vegna nauðsynlegrar þjónustu vegna slysa eða sjúkdóma.
Einkatryggingar
Hér að framan hefur verið fjallað um greiðslur SÍ en bent skal á að margir eiga rétt á endurgreiðslu kostnaðar á grundvelli einkatrygginga. Því er ferðamönnum bent á að kynna sér vel greiðslukortatryggingar, fjölskyldutryggingar og aðrar tryggingar hjá tryggingafélögum.
Mikilvægt er að einstaklingar afli sér upplýsinga um tryggingar sínar, bæði hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) og hjá tryggingafélögum, áður en haldið er af stað erlendis. Of mörg dæmi eru um það að ferðamenn verði fyrir miklum útgjöldum vegna þess að ekki var hugað nægilega vel að öllum þáttum trygginga fyrir brottför.
Ítarefni
Aukin eftirspurn ef ES korti
Í tölfræðigögnum Sjúkratrygginga Íslands kemur fram að eftir talsvert minni eftirspurn eftir kortinu á síðasta ári virðist útgáfan vera að rétta úr kútnum og má búast við frekari aukningu á sumarmánuðum. Hugsanleg skýring á því er breytt ferðamynstur Íslendinga.
Sjúkratrygging í Evrópu
Margir íslenskir sólarlandafarar hafa í góðri trú, jafnvel að fengnum upplýsingum frá fararstjóra eða hóteli, farið á næstu læknastofu á dvalarstað sem síðan hefur reynst einkarekin. Í slíkum tilfellum hafa SÍ ekki heimild til að endurgreiða kostnaðinn.
Ef ferðamaðurinn hefur evrópska sjúkratryggingakortið ekki meðferðis þarf hann sjálfur að leggja út fyrir sjúkrakostnaðinum að fullu. Hægt er að óska eftir tímabundnu skírteini hjá Sjúkratryggingum sem unnt er að faxa. Ef þjónustan hefur verið veitt hjá sjúkrahúsi eða læknastofu með samning við hið opinbera er unnt að sækja um endurgreiðslu hjá SÍ. Gæta þarf þess að halda til haga greiðslukvittunum og sundurliðuðum frumritum reikninga. SÍ þurfa í slíkum tilvikum að senda fyrirspurn til tryggingastofnunar (sjúkrasamlags) viðkomandi lands og geta ekki endurgreitt viðkomandi fyrr en svar hefur borist um hlutfall endurgreiðslu, sem fer eftir reglum viðkomandi lands.



