Greiðsluþátttaka vegna þunglyndislyfja breytist
Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna þunglyndislyfja* breytist 1. júní n.k. með reglugerð **heilbrigðisráðuneytisins. Breytingin felur í sér að hagkvæmustu þunglyndislyfin verða með almenna greiðsluþátttöku. Markmiðið með breytingunum er að draga úr notkun dýrari þunglyndislyfja og ná þannig fram 200-300 milljóna kr. sparnaði á ársgrundvelli. Um 30 þúsund einstaklingar fengu ávísað þunglyndislyfi á síðasta ári og var kostnaður sjúkratrygginga rúmlega 1 milljarður kr.
Um 30 þúsund einstaklingar fengu ávísað þunglyndislyfi á síðasta ári og var kostnaður sjúkratrygginga rúmlega 1 milljarður kr.
Ef læknir metur að sjúklingur þurfi á meðferð með dýrari lyfjunum að halda, getur læknirinn sótt um greiðsluþátttöku (lyfjaskírteini) til Sjúkratrygginga Íslands þar sem ástæða fyrir notkuninni er rökstudd. Til þess að sjúklingar sem nú þegar eru á dýrari lyfjunum fái nægan tíma til að kynna sér breytingarnar og ræða við lækni verða lyfjaávísanir á þunglyndislyf sem gefnar voru út fyrir 1. júní 2010 með óbreyttri greiðsluþátttöku allt til 1. október 2010.
Biðtími eftir lyfjaskírteini
Biðtími eftir lyfjaskírteini hefur stórminnkað vegna nýlegrar rafvæðingar umsóknarferlisins. Afgreiðsla rafrænna umsókna tekur um 3-4 daga en afgreiðsla umsókna sem sendar eru með pósti tekur um 7-10 daga. Ef óskað er eftir flýtiafgreiðslu getur læknir tilgreint það sérstaklega í rafrænu umsókninni eða sent umsókn með faxi til SÍ.
Mikilvægt er að allir notendur þunglyndislyfja kynni sér breytingarnar í næsta apóteki eða hjá lækni. Nánari upplýsingar um greiðsluþátttöku í lyfjum.




