Hægt að lækka kostnað vegna blóðsykurslækkandi lyfja
Í nýútgefnu fréttabréfi lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands(SÍ) kemur fram að ef notkun blóðsykurslækkandi lyfja væri með svipuðum hætti og í Noregi væri hægt að að spara 80-100 milljónir kr.
Kostnaður hefur aukist verulega síðastliðin tvö ár með tilkomu fjölmargra nýrra lyfja í þessum flokki sem eru mun dýrari en eldri lyfin sem eru með vel sannaða virkni.




