Afgreiðsla umsókna hafin vegna reglugerðar um alvarlegar tannviðgerðir
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa nú hrint í framkvæmd reglugerð nr. 190/2010 vegna alvarlegra tannviðgerða. Afgreiðsla umsókna vegna endurgreiðslu er hafin og hefur SÍ sent þeim einstaklingum sem þegar höfðu lagt inn umsókn bréf þess efnis. Jafnframt munu Sjúkratryggingar hafa samband við þá sem ætla má að eigi rétt skv. reglugerðinni. Umsóknarform fyrir endurgreiðslu hafa einnig verið birt á vef SÍ, sjá neðangreindan hlekk.
Sjúkratryggingar Íslands, Tannlæknafélag Íslands (TFÍ) og Tannréttingafélag Íslands (TRÍ) hafa sammælst um skilyrði endurgreiðslu samkvæmt reglugerðinni. Meðal skilyrðanna má nefna að reikningar tannlækna verða gerðir samkvæmt gildandi gjaldskrá sem þeir senda SÍ og sem gildir fyrir þjónustu þeirra óháð því hvort hún fellur undir reglugerðina eða ekki. Einnig að tannlæknar þurfa að taka fram á reikningi kostnað umfram það sem almennt tíðkast vegna dýrari meðferða, efna eða aðferða þar sem hann kemur ekki til endurgreiðslu.




