Afsláttur vegna heilbrigðisþjónustu
Um þessar mundir eru Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) að endurgreiða sjúkratryggðum einstaklingum kostnað vegna heilbrigðisþjónustu í uppgjöri fyrir árið 2009. Þessar endurgreiðslur nema í heild 63 milljónum króna og njóta um 15.000 einstaklingar góðs af. Upphæðirnar eru misháar en meðalgreiðsla á hvern einstakling er um 4.000 kr.
Þetta er í þriðja sinn sem kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu er endurgreiddur á grundvelli rafræns greiðsluuppgjörs við sjálfstætt starfandi sérfræðinga og Landspítala.
Rafræn greiðsluskjöl á sjukra.is
Greiðsluskjöl vegna endurgreiðslunnar geta einstaklingar nálgast í Réttindagátt á www.sjukra.is . Til þess þarf að gefa upp kennitölu og skrá veflykil ríkisskattstjóra.
Óuppgerðar endurgreiðslur
Nokkur hópur hefur enn ekki fengið endurgreiðslu vegna þess að SÍ hafa ekki undir höndum bankareikninga viðkomandi. Hægt er að koma upplýsingum um bankareikning til SÍ í gegnum vefsíðu stofnunarinnar hér að neðan.




