Nú eru afsláttarkort og greiðsluskjöl rafræn
Afsláttarkortakerfi vegna heilbrigðisþjónustu hefur verið breytt frá 1. janúar 2010. Greiða þarf fyrir heilbrigðisþjónustu án afsláttar en fá síðan endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands. Þeir sem ekki geta beðið eftir endurgreiðslu geta nálgast afsláttarkort greiðsluskjöl á A4 formi í Réttindagátt á sjukra.is.
Reglulegar endurgreiðslur
Frá 1. janúar greiða einstaklingar fyrir heilbrigðisþjónustu án afsláttar en geta síðan fengið endurgreiðslu frá SÍ vegna þess sem þeir hafa ofgreitt. Almennt fara endurgreiðslur fram daglega inn á bankareikning og byggjast á upplýsingum sem liggja fyrir hjá SÍ um greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu. Þar með er minni þörf á afsláttarkorti en á móti er réttindum fólks haldið til haga og endurgreitt síðar.
Afsláttarkort rafræn í Réttindagátt
Fyrir þá sem ekki geta beðið eftir endurgreiðslu hefur SÍ opnað þjónustusíðu sína, Réttindagátt („mínar síður“) á vef stofnunarinnar www.sjukra.is í samvinnu við skattur.is. Nauðsynlegt er að nota veflykil ríkisskattstjóra til þess að skrá sig inn. Í Réttindagátt er hægt að nálgast kortið og prenta það út. Eins og áður er kortinu framvísað þegar greitt er fyrir heilbrigðisþjónustu. Sjá lýsingu inn á Réttindagátt

Nýtt útlit afsláttarkorts (A4 blað) sem prentað er út í Réttindagátt og framvísað þegar greitt er fyrir heilbrigðisþjónustu




