Tímamót í rafrænni þjónustu
Nú fyrir stuttu voru tímamót í sögu Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) þegar Heilsugæslustöðin í Efra – Breiðholti sendi stofnuninni fyrstu rafrænu umsóknina (Umsókn um lyfjaskírteini). Er um að ræða mikinn ávinning fyrir viðskiptavinina. Af þessu tilefni veittu starfsmenn lyfjadeildar SÍ yfirlækni Heilsugæslustöðvarinnar blómvönd.
Það var Ólafur Stefánsson læknir á Heilsugæslustöðinn í Efra Breiðholti sem sendi fyrstu umsóknina í gegnum rafrænu gátt Sögukerfis TM Software og hafa í kjölfarið komið fleiri umsóknir frá sömu stöð. Með þessu opnast leið fyrir heilbrigðisstofnanir til að skila umsóknum og vottorðum á rafrænu formi til SÍ sem aftur sparar mikinn kostnað en einnig tíma við innslátt og afgreiðslu mála.
Lyfjaskírteini auka greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í lyfjakostnaði einstaklinga umfram almenna greiðsluþátttöku. Læknar sækja um lyfjaskírteini fyrir einstaklinga sem SÍ gefa út að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Sjúkratryggðir þurfa síðan að framvísa þeim í apótekum, en strax í apríl nk. er ætlunin að gera það óþarft með útgáfu og sendingu rafrænna lyfjaskírteina til apóteka.
Mikill ávinningur fyrir sjúklinga
Þetta er eitt af skrefum stofnunarinnar til aukinna rafrænna gagnasamskipta við heilbrigðisstéttir. Við þetta styttist afgreiðslutími talsvert að ótöldum vinnusparnaði og minni pappírsumsýslu.

Guðrún I. Gylfadóttir, deildarstjóri Lyfjadeildar og Anna Sveinsdótir veita Þórði Ólafssyni yfirlækni blómvönd í tilefni tímamótanna.
Í tilefni af þessum tímamótum veittu Guðrún I. Gylfadóttir og Anna Sveinsdóttir starfsmenn lyfjadeildar SÍ, Þórði Ólafssyni, yfirlækni hjá Heilsugæslunni í Efra – Breiðholti, fallegan blómvönd í tilefni þess að stöðin er sú fyrsta sem sendi rafræna umsókn til stofnunarinnar.
SÍ stefnir á enn frekari rafvæðingu gagnasamskipta við heilbrigðisstéttir næstu misserin og er um þessar mundir að þróa Þjónustugáttir sínar á vefvæði sínu www.sjukra.is. Gáttirnar veita einstaklingum og heilbrigðisstarfsmönnum aðgang að „eigin síðum“ og frekari tækifæri til rafrænna samskipta við stofnunina.




