Breyting á greiðsluþátttöku lyfja

4.3.2010

Heilbrigðisráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum. Reglugerðin tók gildi 1. mars sl. Á vef Heilbrigðisráðuneytisins segir:

Efnislegar breytingar eru tvenns konar: Í fyrsta lagi eru lágmarks-og hámarksgreiðslur sjúklinga í einstökum lyfjaflokkum hækkaðar um 10% til að koma til móts við sparnaðarkröfu fjárlaga. Hér er um að ræða leiðréttingu sem jafngildir þeirri hækkun sem orðið hefur á vísitölu frá 1. mars 2009. Áætlað er að þessi aðgerð feli í sér um 190 milljóna króna lækkun á fyrirsjáanlegum útgjöldum sjúkratrygginga.

Þær breytingar sem gerðar hafa verið á síðasta ári á greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kaupum á lyfjum skv. reglugerð nr. 236/2009 hafa verið færðar inn í nýja heildarreglugerð nr. 140/2010 skv. vef ráðuneytisins.

Til að átta sig betur á þessum breytingum má skoða neðangreint skjal sem útskýrir greiðsluskiptinguna á milli þess sem Sjúkratryggingar Íslands greiða í lyfjum og þess sem einstaklingar greiða.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica