Kílómetragjald vegna ferðakostnaðar innanlands hækkar
Frá og með 1. febrúar 2010 hækkar kílómetragjald ferðakostnaðar úr 26,20 kr upp í 28,20 kr. Sjúkratryggðir einstaklingar geta átt rétt á greiðslu ferðakostnaðar vegna sjúkdómsmeðferða sé viðeigandi þjónusta ekki í boði á heimaslóðum.
Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða 2/3 hluta kostnaðar af fargjaldi með áætlunarferð, en ef eigin bifreið er notuð endurgreiðast 2/3 hluti kostnaðar sem miðast við kr. 28,20 á ekinn km. frá 1. febrúar 2010. Greiðsluhluti sjúklings er þó aldrei hærri en 1.500 krónur fyrir hverja ferð (fram og til baka).
Þetta á við um ferðakostnað vegna tveggja ferða til læknismeðferðar á hverju tólf mánaða tímabili eða vegna ítrekaðra ferða.




