Icelandic Health Insurance
Fréttir

16. 02 2010

Nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ og nýr vefur SÍ (www.sjukra.is)

  • Álfheiður Ingadóttir ávarpar

Nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og nýtt vefsvæði SÍ voru tekin í notkun í dag þegar Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra og Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður SÍ, opnuðu formlega húsnæðið og vefinn.

Nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar

Nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ að Vínlandsleið 16 í Grafarholti

Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands hefur flutt í rýmri og betri húsakynni að Vínlandsleið 16 í Reykjavík. Með nýju húsnæði mun aðstaða batna mikið til hagsbóta fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Á 20 ára tímabili hefur starfsemi Hjálpartækjamiðstöðvar aukist verulega en hlutverk hennar er að annast afgreiðslu umsókna um hjálpartæki, veita faglega ráðgjöf og tryggja hagkvæma  notkun hjálpartækja. Miðstöðin stuðlar þannig að hagkvæmum innkaupum,  og sér um að endurnýta hjálpartæki með viðhaldi og viðgerðarþjónustu á þeim. Áhersla er lögð á að miðla upplýsingum og fræðslu um hjálpartæki.

 

Álfheiður og Benedikt opna húsnæðið

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra og Benedikt Jóhannesson stjórnarformaður SÍ klippa á borða og opna formlega nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ

Nýtt vefsvæði stofnunarinnar hefur einnig verið tekin í notkun. Í grunninn er það umfangsmikil upplýsingaveita um sjúkratryggingar og var haft að leiðarljósi í uppbyggingu  svæðisins að hafa upplýsingar um réttindi almennings eins einfaldar og greinargóðar og mögulegt er. Vefsvæðið inniheldur einnig skref til aukinnar rafrænnar þjónustu við almenning en markmiðið er að rafræn gagnasamskipti og upplýsingagjöf við viðskiptavini stofnunarinnar (almenning og heilbrigðisstarfsfólk) aukist til muna næstu 2-3 árin.

 Benedikt opnar vefsvæði SÍ

Benedikt opnar nýtt vefsvæði stofnunarinnar

Álfheiður Ingadóttir ávarpar

Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, ávarpar gesti við þetta tilefni

Steingrímur Ari forstjóri ávarpar

Steingrímur Ari Arason, forstjóri SÍ, ávarpar gesti


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica