Gjöld 60 - 69 ára með óskertan ellilífeyri verða óbreytt
Heilbrigðisráðuneyti hefur sett nýja reglugerð um hlutdeild í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.* Samkvæmt henni greiða þeir, sem eru 60-69 ára og eru með óskertan ellilífeyri sama gjald fyrir heilbrigðisþjónustu og aldraðir 70 ára og eldri og öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris áður. Reglugerðin gildir frá 1. janúar 2010.
Þann 1. janúar 2010 hækkuðu almennt grunnupphæðir vegna heilbrigðisþjónustu og afsláttarviðmið nema vegna barna.
Sjúkratryggðum er nú skipt á eftirfarandi hátt:
1. Einstaklingar 18-66 ára.
2. Aldraðir 67-69 ára sem hafa skertan eða engan ellilífeyri.
3. Aldraðir 70 ára og eldri, öryrkjar, aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og þeir 60 til og með 69 ára sem njóta óskerts ellilífeyris.
4. Börn yngri en 18 ára
5. Börn með umönnunarkort.
Viðmið það sem greiða þarf fyrir heilbrigðisþjónustu áður en afsláttarkort er útgefið:
| Einstaklingar 18 - 66 ára (og atvinnulausir skv. vottorði) | 27.000 |
| Aldraðir 67 til og með 69 ára sem hafa skertan eða engan ellilífeyri | 21.500 |
| Aldraðir 70 ára og eldri, öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og þeir 60 til og með 69 ára sem njóta óskerts ellilífeyris. | 6.500 |
| Öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu | 8.100 |
Sjá nánari útskýringar á vef Heilbrigðisráðuneytisins
Lesa meira:




