Aukin endurgreiðsla umtalsverðs tannlæknakostnaðar

18.1.2010

  • Aukin endurgreiðsla umtalsverðs tannlæknakostnaðar
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að Sjúkratryggingar Íslands endurgreiði sjúkratryggðum hluta umtalsverðs útlagðs kostnaðar við tannlækningar á árunum 2008 og 2009 vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa á tímabilinu.

Endurgreiða skal 75% af kostnaði umfram 40.000 krónur, sem sjúkratryggður hefur sjálfur borið og SÍ eða TR tekið þátt í að greiða, vegna framantalinna tilvika á árunum 2008 og 2009. Þó skal ekki endurgreiða þann kostnað sem sjúkratryggður hefur borið vegna þess að gjaldskrá tannlæknis er meira en 60% hærri en viðmiðunargjaldskrá SÍ.

Útdráttur

Sækja þarf um endurgreiðsluna fyrir 15. febrúar 2010.

Bréf og umsóknareyðublöð hafa verið send til þeirra sem rétt eiga á endurgreiðslu samkvæmt upplýsingum úr greiðslukerfi Sjúkratrygginga.

Bréfið og eyðublaðið má einnig nálgast hér.

Upplýsingar:

Sími: 560-4433 eða í tölvupósti: reynir.jonsson@sjukra.is


Reglugerð
nr. 1061/2009 um eingreiðslu sjúkratrygginga á umtalsverðum tannlækniskostnaði.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica