Breytt afsláttarkort frá 1. janúar 2010
Útgáfu plastkorta hætt
Nálgast má kortin og skjölin í Réttindagátt á www.sjukra.is. Þetta er liður í frekari rafvæðingu stjórnsýslunnar og hagræðingu í heilbrigðiskerfinu.
Afsláttarkort rafræn í Réttindagátt
SÍ hefur opnað þjónustusíðu sína, Réttindagátt („mínar síður“) á vef stofnunarinnar www.sjukra.is í samvinnu við skattur.is.
Einfalt er að nálgast afsláttarkortið og greiðsluskjölin í Réttindagátt.
- Þú skráir þig með veflykli skattyfirvalda í gegnum gáttina sem leiðir þig inn á þjónustusíður SÍ á skattur.is. (Upplýsingar um veflykil er á skattur.is)
- Á svæði í flokknum "Sjúkratryggingar Íslands" er afsláttarkortið aðgengilegt. Einnig kvittanir/greiðsluskjöl frá stofnuninni vegna heilbrigðisþjónustu.
- Afsláttarkortið prentað.
Eins og áður er kortinu framvísað þegar greitt er fyrir heilbrigðisþjónustu.
Mánaðarlegar endurgreiðslur
Ef einstaklingar sem hafa áunnið sér rétt til afsláttarkorts hafa ekki tök á að nálgast kortið í gegnum Réttindagáttina, geta þeir greitt fyrir heilbrigðisþjónustuna án afsláttar en fengið síðan endurgreiðslu frá SÍ vegna þess sem þeir hafa ofgreitt. Almennt fara endurgreiðslur fram eftir 20. hvers mánaðar og byggjast á upplýsingum sem liggja fyrir hjá SÍ um greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu. Skilyrði er að SÍ hafi upplýsingar um bankareikning viðkomandi. Hægt er að senda inn upplýsingar um bankareikning hér.
Einnig er hægt að nálgast afsláttarkort og greiðsluskjöl með því að hafa samband í síma 515-0000 eða koma við í þjónustumiðstöð að Laugavegi 114 / sýsluskrifstofum á landsbyggðinni.
Upplýsingar um greiðslur frá sjálfstætt starfandi sérfræðingum og Landspítala berast Sjúkratryggingum Íslands rafrænt. Kvittanir frá heilsugæslu og sjúkrahúsum (öðrum en Landspítala) þarf eftir sem áður að skila til stofnunarinnar til að eiga rétt á afsláttarkorti og/eða endurgreiðslu. Sjá upplýsingar um afsláttarkort.
Framtíðarsýn – afsláttarkort óþörf
Sjúkratryggingar Íslands stefna að bættri þjónustu með auknum rafrænum samskiptum við heilbrigðisstéttir. Þannig mun stofnunin fá upplýsingar um greiðslur einstaklinga rafrænt og getur reiknað út réttindi með öruggari hætti. Jafnframt munu heilbrigðisstarfsmenn fá upplýsingar um afsláttarkort einstaklinga. Þar af leiðandi ætti útgáfa afsláttarkorta að verða óþörf í nánustu framtíð.
Sparnaðaraðgerða er þörf
SÍ er sniðinn þröngur stakkur í rekstri stofnunarinnar fyrir komandi starfsár og er gert að skera niður um 50 milljónir kr. á árinu 2010. Stofnunin þarf því að leita leiða til sparnaðar án þess að skerða réttindi almennings eða segja upp starfsfólki. Um það bil 54.000 kort voru gefin út á árinu 2008 og er talið að með rafvæðingu þeirra og greiðsluskjala megi spara u.þ.b. 10 milljónir kr. Þá er ótalinn mikill kostnaður sem sparast í bakvinnslu og vinnu starfsfólks vegna korta.
Frekari upplýsingar
- Upplýsingar um afsláttarkort og afsláttarkerfi í heilbrigðisþjónustu
- Þjónustumiðstöð, sími 515-0000
- Sendu póst á sjukra@sjukra.is
- Sýsluskrifstofa í þínu héraði




