Fréttasafn Sjúkratrygginga Íslands

Fyrirsagnalisti

Frettabref_lyfjadeildar

17.4.2012 : Breytingar á greiðsluþátttöku í geðrofslyfjum

Velferðarráðherra hefur undirritað reglugerð um 6. breytingu á reglugerð nr. 403/2010 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum sem tekur gildi þann 1. júní næstkomandi. Reglugerðin felur í sér breytingar á greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í geðrofslyfjum þannig að um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga verður aðeins að ræða þegar verð á skilgreindum dagskammti er 600 krónur eða lægra. Þó verður mögulegt að sækja um lyfjaskírteini fyrir öðrum geðrofslyfjum hafi meðferð reynst vel, samkvæmt vinnureglu um útgáfu lyfjaskírteinis.

Lesa meira
 

19.3.2012 : Líffæraígræðsluteymi frá Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg halda fyrirlestra

Þann 19. og 20. mars mun teymi frá Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg haldið fyrirlestra á Landspítalanum en SÍ, LSH og Sahlgrenska vinna eftir samningi um líffæraígræðslu. 

Lesa meira
 

13.3.2012 : Algeng blóðþrýstingslyf fá aftur greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands

Eins og komið hefur fram á vef velferðarráðuneytisins hefur velferðarráðherra ákveðið breytingu á reglugerð nr. 403/2010 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum. Lesa meira
 
Gagnagátt Lógó

6.3.2012 : Launamiðar eru komnir í Gagnagátt

Launamiða 2012 vegna ársins 2011 má nú nálgast í Gagnagátt (mínar síður rekstraraðila). Innskráning fer fram á forsíðu www.sjukra.is undir „Þjónustugáttir SÍ“.

Lesa meira
 
Sidasta-prentada-lyfjaskirteinid_

13.2.2012 : Síðasta útprentaða lyfjaskírteinið gefið út

Þann 10. febrúar sl. var síðasta lyfjaskírteinið gefið út á pappírsformi. Öll apótek á landinu geta fengið upplýsingar rafrænt um hvort einstaklingar hafi lyfjaskírteini auk annarra réttinda.
Lesa meira
 

30.1.2012 : Öll apótek geta sótt réttindastöðu við lyfjakaup - Lyfjaskírteini nú rafræn

Öll apótek á landinu geta nú fengið upplýsingar rafrænt um hvort einstaklingar hafi lyfjaskírteini auk annarra réttinda. Hætt verður útgáfu þeirra á pappír 10. febrúar nk. Einstaklingar geta sjálfir séð upplýsingar um sitt lyfjaskírteini í Réttindagátt (mínar síður á www.sjukra.is).

Lesa meira
 
sjukra.is

20.1.2012 : sjukra.is er 6. besti vefur ríkisins

Vefur Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is hafnaði í 6. sæti í úttekt á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga fyrir árið 2011 með einkunnina 87 af 100. Í úttektinni tóku 267 stofnanir þátt á vegum ríkis og sveitarfélaga.

Lesa meira
 
shutterstock_28933948-LR

4.1.2012 : Samningur við tannlækna um forvarnarskoðun barna framlengdur

Gildistími rammasamnings Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og þeirra tannlækna sem eftir honum starfa, hefur verið framlengdur til loka árs 2012.

Lesa meira
 
SjukratryggingarMerki_skja

28.12.2011 : Breytingar á gjaldskrám vegna heilbrigðisþjónustu um áramót

Gjöld sem sjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu breytast um áramótin en skv. vef velferðarráðuneytisins munu þau hækka að jafnaði um 5,3% í samræmi við áætlun fjárlaga um hækkun sértekna stofnana og þar með vegna verðlags- og gengisbreytinga. Komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjald fyrir vitjanir heilsugæslulækna verða óbreytt.

Lesa meira
 
Gleðileg jól 2011 frá SÍ

21.12.2011 : Opnunartími Sjúkratrygginga yfir jól og áramót

Þorláksmessa kl. 10-12
27-29 desember kl 10-15:30
30. desember kl. 10-12

Lesa meira
 

28.11.2011 : Sjúkratryggðir fá tölvupóst þegar ný greiðsluskjöl og bréf birtast í þjónustugáttum

Nýlega hóf SÍ að senda tilkynningar í tölvupósti til notenda þjónustugátta SÍ(mínar síður) þ.e. Réttindagáttar og Gagnagáttar um að ný greiðsluskjöl og bréf birtast í gáttunum.

Lesa meira
 

24.11.2011 : Góð stemmning á 25 ára afmæli Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ

Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands hélt opið hús föstudaginn 18. nóvember sl frá 12-15:30. Rúmlega 200 manns litu við og myndaðist hress og skemmtileg stemmning.

Lesa meira
 
Rikisendurskodun

21.11.2011 : Skýrsla Ríkisendurskoðunar á þróun lyfjakostnaðar 2008 - 2010

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar á þróun lyfjaskostnaðar 2008-2010 kemur fram að aðgerðir stjórnvalda til að draga úr lyfjaskostnaði hafa skilað verulegum árangri. Lesa meira
 
samfelagid_thattamyndir

21.11.2011 : Bein útsending frá Hjálpartækjamiðstöð í Samfélaginu í nærmynd

Í tilefni af 25 ára afmæli Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ sendi Samfélagið í nærmynd á Rás 1 beint út frá miðstöðinni á föstudaginn var (18. nóvember) á milli kl 11 og 12. Þær Hrafnhildur Halldórsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir fjölluðu um starfsemi Hjálpartækjamiðstöðvar og tóku starfsmenn, notendur hjálpartækja og aðstandendur notenda tali. Lesa meira
 
Hjálpartækjamiðstöð 25 ára

15.11.2011 : Hjálpartækjamiðstöð 25 ára - Opið hús 18. nóvember - Allir velkomnir!

Í tilefni af 25 ára afmæli Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands verður opið hús, föstudaginn 18. nóvember frá kl 12:00 – 15:30 í húsnæði miðstöðvarinnar að Vínlandsleið 16. Meðal þess sem verður í boði er:

Lesa meira
 
Aukin endurgreiðsla umtalsverðs tannlæknakostnaðar

11.11.2011 : Tannlæknisþjónusta fyrir börn tekjulágra

Á næstu mánuðum verður lokið við að veita tannlæknisþjónustu börnum tekjulágra foreldra sem fengið höfðu samþykki fyrir þjónustu samkvæmt tímabundnu átaksverkefni. Um er að ræða þau börn sem áttu ólokið meðferð eða höfðu ekki fengið tíma í sumar þegar verkefninu átti að ljúka.

Lesa meira
 
Lógó Læknablaðsins

4.11.2011 : Læknablaðið fjallar um rafræna þjónustu Sjúkratrygginga Íslands

Í Læknablaðinu sem kom út í dag er fjallað um miðlun SÍ á réttindastöðu einstaklinga vegna læknisþjónustu og lyfjakaupa.

Lesa meira
 
Sjúkra

3.11.2011 : Endurgreiðsla kostnaðar vegna sérfræðilækna

Endurgreiðsla kostnaðar vegna sérfræðilækna mun haldast óbreytt en velferðarráðuneytið framlengdi endurgreiðslureglugerð sem rann út 31. október sl.

Lesa meira
 
Sjúkratryggingar Íslands

25.10.2011 : Námskeið fyrir sjúkraþjálfara og ritara sjúkraþjálfunarstofa

Föstudaginn 18. nóvember n.k. er ráðgert að halda námskeið fyrir sjúkraþjálfara og ritara sem starfa á stofum sjúkraþjálfara.

Lesa meira
 
Kross_litill

20.10.2011 : Upplýsinga- og kynningarstefna Sjúkratrygginga Íslands

Nýlega var stefna í upplýsinga- og kynningarmálum samþykkt hjá Sjúkratryggingum Íslands. Tilgangur stefnunnar er að ramma upplýsinga- og kynningarmál er varða málefni stofnunarinnar í þeim tilgangi að upplýsingaflæði sé öflugt og markvisst utan stofnunarinnar sem innan. Gott upplýsingaflæði leiðir af sér gott starfsumhverfi, góða þjónustu og stjórnsýslu til hagsbóta fyrir alla aðila sem starfa hjá eða eru í samskiptum við stofnunina. Lesa meira
 

10.10.2011 : Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði vegna tæknifrjóvgana

Í kjölfar þess að samningur Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) við ArtMedica um tæknifrjóvganir rann út, hefur velferðarráðherra sett reglugerð um endurgreiðslu sjúkratrygginga vegna kostnaðar við tæknifrjóvgun sem veitt er án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Lesa meira
 

26.9.2011 : Fréttabréf SÍ - Sjúkratryggingar Íslands veita upplýsingar um réttindastöðu sjúklinga rafrænt

Í fréttabréfi SÍ sem kom út í dag kemur fram að nýlega hefur stofnunin hafið rafræna miðlun upplýsinga um réttindastöðu sjúklinga til almennings og veitenda heilbrigðisþjónustu (t.d. lækna og apóteka) bæði í gegnum þjónustugáttir stofnunarinnar og með rafrænni tengingu.

Þetta þýðir að veitendur heilbrigðisþjónustu geta nú nálgast rafrænt upplýsingar til að ákvarða rétta kostnaðarþátttöku sjúklinga án frekari staðfestinga eða framvísunar á afsláttarskírteinum. Á sama tíma getur almenningur skoðað rafrænt eigin réttindi, sótt afsláttarkort og skoðað reikningsyfirlit og endurgreiðslur vegna heilbrigðisþjónustu.

Lesa meira
 
Island.is

19.9.2011 : Réttindagátt hluti af þjónustutorgi Ísland.is

Auk Réttindagáttar (mínar síður einstaklinga) Sjúkratrygginga Íslands auðkennir á annan tug stofnana sína þjónustuvefi í gegnum Ísland.is. Ísland.is hefur nú tekið þjónustu sína skrefi lengra og býður upp á eina innskráningu inn á alla vefi sem auðkenna sig í gegnum síðuna. Réttindagáttin er einn af fyrstu þjónustuvefjunum sem tekur þátt í þessu samstarfi.

Lesa meira
 
Fréttabréf SÍ 4.tbl.

7.9.2011 : Fréttabréf SÍ - Árangur í lækkun þunglyndislyfjakostnaðar

Í nýjasta fréttabréfi SÍ sem gefið er út í dag er fjallað um árangur í lækkun þunglyndislyfjakostnaðar. Kostnaðurinn hefur lækkað um 488 millj. kr. á einu ári frá 1. júní 2010 til 31. maí 2011 miðað við síðustu 12 mánuði á undan. Þetta gerist þrátt fyrir að ávísað hafi verið þunglyndislyfjum á svipaðan fjöldi fólks frá fyrra tímabili.

Lesa meira
 
shutterstock_13123054-LR

2.9.2011 : Sjúkratryggingar Íslands semja við talmeinafræðinga

Þann 1. september sl. tók gildi nýr rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um talmeinaþjónustu. Af þeim 20 talmeinafræðingum sem starfa sjálfstætt á stofu á Íslandi hafa 17 þeirra nú samið við SÍ. Áður höfðu 9 talmeinafræðingar verið á samningi við SÍ og því bætast 8 við á nýjan samning.

Lesa meira
 
SÍ og TR

31.8.2011 : Breyttur opnunartími Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar

Þjónusta Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar verður framvegis opin frá kl. 10:00 til 15.30. Þjónustumiðstöðin að Laugavegi 114, Hjálpartækjamiðstöðin að Vínlandsleið 16 og símaþjónustan verða opnar þennan tíma alla virka daga. Skiptiborð Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands, þ.á.m.  Hjálpartækjamiðstöðvar, verður hins vegar virkt frá kl. 10.00 til 16.00 alla virka daga.

Lesa meira
 
Norræn ráðstefna á Íslandi 2011

31.8.2011 : Sjúkratryggingar Íslands halda norræna ráðstefnu um sjúklingatryggingu

Sjúkratryggingar Íslands eru nú gestgjafar árlegrar norrænnar ráðstefnu um sjúklingatryggingu. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Selfossi dagana 31. ágúst til 2. september n.k.

Lesa meira
 
Upplýsingar um afsláttarkort

16.8.2011 : Afsláttarkort og Réttindagátt

Upplýsingaeinblöðungur hefur verið útbúinn um afsláttarkort og Réttindagátt (mínar síður einstaklinga á sjukra.is). Einblöðungurinn er ætlaður almenningi og er aðgengilegur hér að neðan. Í Réttindagáttinni er hægt að nálgast afsláttarkort, skoða stöðu kortsins og hvaða reikninga SÍ hefur móttekið.

Lesa meira
 
RG

18.7.2011 : Réttindagátt opnar – skoðaðu þín réttindi vegna heilbrigðisþjónustu

Nú hefur Réttindagátt opnað hér á sjukra.is sem eru „mínar síður“ fyrir einstaklinga og rafræn samskipti þeirra við Sjúkratryggingar Íslands. Í Réttindagáttinni geta einstaklingar fengið upplýsingar um réttindi sín vegna heilbrigðisþjónustu. Þar er hægt að skoða:

Lesa meira
 

11.7.2011 : Breytt þjónusta um hásumarið

Vakin er athygli á að frá 11. júlí til og með 22. júlí nk. verður þjónusta Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Tryggingastofnunar (TR) á Laugavegi 114 takmörkuð.

Lesa meira
 
shutterstock_28933948-LR

30.6.2011 : Rammasamningur tannlækna um forvarnarskoðanir framlengdur til áramóta

Forvarnarskoðun barna 3ja, 6 og 12 ára barna

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa framlengt samning við tannlækna um forvarnarskoðanir þriggja, sex og tólf ára barna til næstu áramóta. Skoðunin er greidd ef hún fer fram á meðan börn eru á þessum aldri.

Lesa meira
 

21.6.2011 : Áfangi í rafrænum samskiptum apóteka við SÍ

Í dag tengdust öll apótek Lyfja og heilsu rafrænu kerfi Sí vegna uppflettingar á réttindastöðu þeirra einstaklinga sem fá afgreidd lyf.

Lesa meira
 

14.6.2011 : Tölvukerfi komin í lag

Tölvukerfi Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar Ríkisins eru komin í lag.
Lesa meira
 
Skjaldamerki Íslands

10.6.2011 : Hækkun greiðslna almannatrygginga

Á mánudaginn kynnti velferðaráðherra hækkanir bóta almanna- og atvinnuleysistrygginga í tengslum við kjarasamninga. Vakin er athygli á að þær upphæðir sem þar koma fram eru fyrir staðgreiðslu skatta..

Lesa meira
 
important

10.6.2011 : Bilun í tölvukerfi SÍ

Vegna bilunar í tölvukerfi SÍ eru tengingar ytri aðila við kerfi stofnunarinnar óvirkar. Þetta á við um allar tengingar nema réttindauppflettingu apóteka. Unnið er að viðgerð og verður tilkynnt um leið og henni lýkur.

Lesa meira
 
gul-blom

30.5.2011 : Sumaropnun SÍ og TR

Ágæti viðskiptavinur. 
Á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst verða þjónustumiðstöðin, Hjálpartækjamiðstöðin og símaþjónustan opin frá kl. 10.00 til 15.30. Skiptiborð Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar , þ.á.m.  Hjálpartækjamiðstöðvar, verður virkt frá kl. 10.00 til 16.00

Lesa meira
 
Átt þú rétt á endurgreiðslu vegna dvalar á sjúkrahóteli?

2.5.2011 : Umsóknarfrestur vegna endurgreiðslu sjúkrahótela er runnin út.

Umsóknarfrestur vegna endurgreiðslu sjúkrahótels rann út 1. maí 2011 og er því liðinn.

Lesa meira
 
Velferðarráðuneytið

15.4.2011 : Samið við Læknavaktina um móttökuvakt og vitjanaþjónustu

Samningar hafa tekist milli Sjúkratrygginga Íslands og Læknavaktarinnar ehf. um móttökuvakt og vitjanaþjónustu heimilislækna utan dagvinnutíma heilsugæslustöðva í Reykjavík og nágrenni. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra staðfesti samningana í dag.

Lesa meira
 

5.4.2011 : Góður árangur við lækkun lyfjakostnaðar

Samkvæmt ársskýrslu lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) lækkaði lyfjakostnaður sjúkratrygginga um 1.149 millj. kr. eða um 10,7% á árinu 2010 þrátt fyrir að notkun mæld í dagskömmtum hafi aukist um 5,9%. Megin­ástæða lækkunarinnar var aukin notkun ódýrari lyfja í kjölfar breytinga á reglum um greiðslu­þátttöku lyfja í nokkrum lyfjaflokkum.

Lesa meira
 

1.4.2011 : Endurgreiðsla reikninga vegna þjónustu sérgreinalækna sem starfa án samnings við SÍ

 

Sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar starfa nú án samnings við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ).  Til að tryggja greiðsluþátttöku SÍ hefur velferðarráðuneytið sett reglugerð sem kveður á um þátttöku sjúkratrygginga í nauðsynlegum kostnaði sjúkratryggðra vegna þjónustu sérgreinalækna sem starfa án samnings við SÍ, sjá reglugerð.  Þátttakan tekur til kostnaðar vegna verka sem tilgreind eru í gjaldskrá SÍ, sjá gjaldskrá. Reglugerðin og gjaldskrá SÍ gilda frá og með 1. apríl 2011.

Lesa meira
 
Afslattarkort-A4

24.3.2011 : Afsláttarkort.
Mikilvægum áfanga náð í rafrænum samskiptum við veitendur heilbrigðisþjónustu.

Nýlega náðist mikilvægur áfangi á leið Sjúkratrygginga til útfærslu rafræns afsláttarkorts til hagsbóta fyrir sjúkratryggða einstaklinga sem sækja sér læknisþjónustu.

Hafin er rafræn sending upplýsinga um kostnað við komur einstaklinga til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands til Sjúkratrygginga Íslands og gildir það fyrir allar kvittanir frá 1. Janúar 2011.  

Lesa meira
 
thraut_logo

21.3.2011 : Samningur um þverfaglega þjónustu við fólk með vefjagigt

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur staðfest samning milli Sjúkratrygginga Íslands og Þrautar ehf. um tilraunaverkefni sem felur í sér þverfaglega þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga með vefjagigt og tengda sjúkdóma.

Lesa meira
 
Gagnagátt Lógó

9.3.2011 : Launamiðar 2011 vegna ársins 2010 eru komnir inn á Gagnagátt

Launamiðar 2011 vegna ársins 2010 má nú nálgast á Gagnagátt.  Innskráningarglugga á gáttina er að finna á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), www.sjukra.is og velja þar Gagnagátt.

Lesa meira
 
Átt þú rétt á endurgreiðslu vegna dvalar á sjúkrahóteli?

25.2.2011 : Átt þú rétt á endurgreiðslu vegna dvalar á sjúkrahóteli?

Sjúkratryggingum Íslands hefur verið falið að endurgreiða kostnað sjúkratryggðra   sem dvöldu á  sjúkrahótelinu Lind á tímabilinu 15. september 2005 til og með 30. september 2009. Unnt er að sækja  um endurgreiðslu hér fyrir neðan og er umsóknarfrestur til 1. maí 2011.

Lesa meira
 
Undirskrift samnings milli SÍ og Lunds í Svíþjóð um barnaskurðlækningar

3.2.2011 : Sjúkratryggingar Íslands undirrita samning við Háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð um hjartaskurðaðgerðir á íslenskum börnum

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð (HLS) undirituðu í morgun samning, að viðstöddum velferðarráðherra, um hjartaskurðaðgerðir á börnum. HLS stendur einna fremst á Norðurlöndum í hjartaskurðlækningum og með samningnum næst umtalsverð lækkun á kostnaði frá fyrri samningi við Barnaspítalann í Boston auk þess sem að ferðatími styttist og ferðatíðni eykst.

Lesa meira
 
IMG_1779

18.1.2011 : Guðbjartur heimsótti Sjúkratryggingar Íslands

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, heimsótti húsakynni SÍ að Laugavegi 114-118 og Hjálpartækjamiðstöð að Vínlandsleið 16, föstudaginn 18. janúar sl. Hann fundaði með stjórnendum stofnunarinnar og heilsaði upp á starfsmenn. Með honum í för voru þær Anna Lilja Gunnarsdóttir ráðuneytisstjóri og Hrönn Ottósdóttir skrifstofustjóri úr velferðarráðuneytinu.
Lesa meira
 

11.1.2011 : Samningur um þjónustu heimilislækna utan heilsugæslustöðva

Undirritaður hefur verið rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands við heimilislækna sem starfa utan heilsugæslustöðva í Reykjavík. Lesa meira
 
SjukratryggingarMerki_skja

4.1.2011 : Verðskrárhækkanir og nýjar reglugerðir 1. janúar 2011

Greiðsluþátttaka einstaklinga í heilbrigðisþjónustu og lyfjakostnaði hækkaði 1. janúar 2011 til samræmis við verðlagsþróun og forsendur fjárlaga.

Lesa meira
 
Gægist þú inn í Gagnagátt?

3.1.2011 : Gægist þú inn í Gagnagátt?

Endurbætt Gagnagátt opnaði nú um áramótin. Gáttin er „mínar síður“ fyrir rekstraraðila t.d. heilbrigðisstarfsmenn. Hún eykur skilvirkni og bætir þjónustu við rekstraraðila.

Lesa meira
 
Gleðileg jól frá Sjúkratryggingum Íslands

30.12.2010 : Opnunartími Sjúkratrygginga um áramót

Sjúkratryggingar Íslands verða lokaðar á gamlársdag og Þjónustumiðstöð að Laugavegi 114 og Hjálpartækjamiðstöð að Vínlandsleið 16 opna kl. 10.00 þann 3. janúar á nýju ári.

Lesa meira
 

21.12.2010 : Lyfjaskírteini fyrir metýlfenídat lyfjum breytast 1. janúar 2011

Lyfjaskírteini fyrir metýlfenídat lyfjum (Ritalin, Ritalin Uno og Concerta) breytast um áramótin. Er þetta gert í framhaldi af skýrslu sem vinnuhópur á vegum ráðuneytisins gerði til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun metýlfenídats.
Lesa meira
 

13.12.2010 : Allar heilbrigðisstofnanir geta sent rafræna umsókn um lyfjaskírteini til SÍ

Nýverið náðist sá áfangi að allar heilbrigðisstofnanir (heilsugæsla og spítalar) í eigu ríkisins geta sent rafræna umsókn um lyfjaskírteini til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). Frá sama tíma  hófst rafræn miðlun um réttindastöðu og lyfjaskírteini til fyrsta apóteksins. Gera má ráð fyrir að apótek muni tengjast SÍ, eitt af öðru og er áætlað að öll apótek verði orðin tengd um miðjan janúar n.k.

Lesa meira
 
SÍ og TR

1.12.2010 : Sjúkratryggingar Íslands og Tryggingastofnun ríkisins - hver er munurinn?

Af gefnu tilefni vilja Sjúkratryggingar Íslands árétta  eftirfarandi:

Lesa meira
 
namskeid-sjthj-15.11.10

19.11.2010 : Vel sótt námskeið sjúkraþjálfara

Góð mæting var á námskeið fyrir sjúkraþjálfara sem SÍ hélt mánudaginn 15. nóvember sl. Rúmlega 100 manns mættu eða fylgdust með á netinu.
Lesa meira
 
Frettabref-SI

15.11.2010 : Sjúkratryggingar Íslands gefa út fréttabréf

Fyrsta fréttabréf Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) var gefið út í dag. Í fréttabréfinu er lögð áhersla á stöðu og þróun rafrænna samskipta hjá stofnuninni. Greint er frá stefnu SÍ í rafrænum samskiptum við veitendur heilbrigðisþjónustu og nýjustu fregnum í þeirri þróun. Meðal annars eru læknar hvattir til að senda inn fleiri rafrænar umsóknir og sagt er frá því að í fyrsta sinn hefur réttindastöðu einstaklinga verið miðlað rafrænt til apóteks í rauntíma þegar greitt er fyrir lyf.
Lesa meira
 

12.11.2010 : Lyfjaver ríður á vaðið með beintengingu réttindastöðu vegna lyfjaskírteina

Sjúkratryggingar Íslands hófu í októbermánuði miðlun réttindastöðu til apóteka. Lyfjaver reið á vaðið með þessa tengingu. Um er að ræða rauntímatengingu milli apóteks og SÍ þar sem svarað er fyrirspurn um m.a. tilvist lyfjaskírteinis vegna tilgreindra lyfja.

Lesa meira
 

3.11.2010 : Sjúkratryggingar Íslands og rafræn samskipti

SÍ eru nú að hefja rafræna miðlun í rauntíma til veitenda heilbrigðisþjónustu um m.a. réttindastöðu sjúkratryggðra. Um áramótin opnar á www.sjukra.is Réttindagátt og Gagnagátt verður endurskoðuð.

Lesa meira
 
Anna-Sveinsdottir

2.11.2010 : Lyfja- og lækniskostnaður barna - Grein í Astma- og ofnæmisblaðinu

Grein birtist í tímariti Astma og ofnæmisfélagsins eftir Önnu Sveinsdóttur, verkefnastjóra í lyfjadeild Sjúkratrygginga Íslands. Þar fjallar hún um kostnaðarþátttöku í lyfjum fyrir börn.
Lesa meira
 

27.10.2010 : Lyfjakostnaður lækkað

Á vef heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að breytingar sem gerðar hafa verið á greiðsluþátttöku ríkisins í lyfjakostnaði og fleiri aðgerðir hafa sparað þjóðarbúinu hátt á þriðja milljarð króna á ársgrundvelli.

Lesa meira
 
Throskahjalp_tannmal_20.10

21.10.2010 : Tannmál í tímariti Þroskahjálpar

SÍ birtir grein í tímariti Þroskahjálpar sem kom út í október um endurgreiðslur á tannlæknakostnaði vegna barna.
Lesa meira
 
SjukratryggingarMerki_skja

11.10.2010 : Námskeið fyrir sjúkraþjálfara og ritara sjúkraþjálfunarstofa

Mánudaginn 15. nóvember n.k. er ráðgert að halda námskeið fyrir sjúkraþjálfara og ritara sem starfa á stofum sjúkraþjálfara. Lesa meira
 
SjukratryggingarMerki_skja

1.10.2010 : Sjúkratryggingar Íslands eiga afmæli í dag

Sjúkratryggingar Íslands tóku til starfa þennan dag árið 2008 samhliða gildistöku nýrra  laga um sjúkratryggingar nr.112/2008.

Lesa meira
 

6.9.2010 : Nýjar reglugerðir um tannlækningar og brýna læknismeðferð erlendis

Heilbrigðisráðherra hefur undirritað tvær reglugerðir, annars vegar reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar og hins vegar reglugerð um brýna læknismeðferð erlendis. Markmiðið er að einfalda og samræma eldri reglugerðir.

Lesa meira
 
Stjórn SÍ 2010

3.9.2010 : Ný stjórn Sjúkratrygginga Íslands fundar

Nýskipuð stjórn Sjúkratrygginga Íslands hélt sinn fyrsta fund í gær, 2. september. Heilbrigðisráðherra skipaði nýja stjórn SÍ frá og með 15. ágúst sl. Lesa meira
 
Skjaldamerki Íslands

2.9.2010 : Aðgerðir gegn misnotkun á ritalini

Í frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að skipaður hefur verið vinnuhópur til að skipuleggja aðgerðir til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun á methýlphenídati, sem birtist umfram allt í mikilli notkun á Ritalini og Ritalin Uno.

Lesa meira
 

18.8.2010 : Kostnaður lyfja við ADHD aukist mikið hjá fullorðnum

Kostnaður sjúkratrygginga á þessu ári vegna lyfja við ADHD stefnir í að þrefaldast frá árinu 2006 en athygli vekur að mikil aukning er á notkun lyfsins hjá fullorðnum. Notkun lyfja við ADHD er einnig talsvert meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum.

Lesa meira
 
Sjúkratryggingar Íslands

16.8.2010 : Ný stjórn Sjúkratrygginga Íslands skipuð

Heilbrigðisráðherra hefur skipað Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) nýja stjórn frá og með 15. ágúst sl.

Lesa meira
 
Áfram veginn 2010

4.8.2010 : Áfram  veginn 2010 komið út

Upplýsingarit fyrir eldri borgara um almannatryggingar, „Áfram veginn 2010“ er komið á vef Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is og vef Tryggingastofnunar www.tr.is. Lesa meira
 

26.7.2010 : Breytingar á greiðsluþátttöku lyfja – hvað hefur áunnist?

Á undanförnum mánuðum hafa verið gerðar breytingar á greiðsluþátttöku nokkurra lyfjaflokka. Hér er fjallað um áhrif þessara breytinga á lyfjakostnað sjúkratrygginga.

Lesa meira
 
Sjúkraflugvél Mýflugs

23.7.2010 : Sjúkraflugvél verður í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina

Tryggt hefur verið að sjúkraflugvél verður staðsett í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Heilbrigðisráðherra fól nýlega Sjúkratryggingum Íslands að semja við Mýflug hf. um þetta, en kostnaðarauki vegna þessa er 725 þúsund krónur. Lesa meira
 

3.6.2010 : Hækkun hjá sérfræðilæknum

Sérfræðilækniskostnaður hækkaði um 1,9% þann 1. júní sl. samkvæmt samningi sérfræðilækna við heilbrigðisráðuneytið.

Lesa meira
 
Blaðamannafundur ráðherra um þunglyndislyf

1.6.2010 : Þunglyndislyf lækka um 20-63%

Um þriðjungur þunglyndislyfja sem ekki féllu að breyttri greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands hefur lækkað í verði. Ný reglugerð um breytta greiðsluþátttöku við kaup á lyfjum tekur gildi í dag, en markmið hennar er að draga úr notkun dýrari þunglyndislyfja. Lækkanir sem orðið hafa á hluta þunglyndislyfja eftir að reglugerðin var kynnt eru á bilinu 20-63%. Þetta er veruleg lækkun á smásöluverði en sumar lyfjapakkningar lækka um 7-9 þúsund krónur. Lík þróun hefur átt sér stað í Danmörku og Svíþjóð, þar sem gripið hefur verið til svipaðra ráðstafana. Lesa meira
 
Evrópska sjúkratryggingakortið - Fyrir ferðalagið í sumar

26.5.2010 : ES kortið – fyrir ferðalagið í sumar!

Nú eru eflaust margir á leið til útlanda. Þeir sem ferðast í Evrópu og eru sjúkratryggðir á Íslandi eiga rétt á að fá nauðsynlega opinbera læknisþjónustu á sömu kjörum og íbúar evrópulandsins. Til þess þarf að að framvísa evrópska sjúkratryggingaskírteininu sem gefið er út af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Mikilvægt er að einstaklingar afli sér upplýsinga um tryggingar sínar hjá hinu opinbera og hjá tryggingafélögum áður en haldið er af stað erlendis.

Lesa meira
 

20.5.2010 : Öllum sem þurfa lyf við þunglyndi áfram tryggð lyf

Eins og fréttin, sem birt var þann 18. maí á sjukra.is og á vef heilbrigðisráðuneytisins, gefur til kynna er tryggt að enginn sjúklingur sem nýtur lyfjameðferðar vegna þunglyndis verður án lyfja í kjölfar nýrrar reglugerðar um breytta greiðsluþátttöku vegna þunglyndislyfja. Lesa meira
 

18.5.2010 : Greiðsluþátttaka vegna þunglyndislyfja breytist

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna þunglyndislyfja* breytist 1. júní n.k. með reglugerð **heilbrigðisráðuneytisins. Breytingin felur í sér að hagkvæmustu þunglyndislyfin verða með almenna greiðsluþátttöku. Markmiðið með breytingunum er að draga úr notkun dýrari þunglyndislyfja og ná þannig fram 200-300 milljóna kr. sparnaði á ársgrundvelli. Um 30 þúsund einstaklingar fengu ávísað þunglyndislyfi á síðasta ári og var kostnaður sjúkratrygginga rúmlega 1 milljarður kr.

Lesa meira
 

12.5.2010 : Hægt að lækka kostnað vegna blóðsykurslækkandi lyfja

Í nýútgefnu fréttabréfi lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands(SÍ) kemur fram að ef notkun blóðsykurslækkandi lyfja væri með svipuðum hætti og í Noregi væri hægt að að spara 80-100 milljónir kr.

Lesa meira
 
Sjúkraflugvél Mýflugs

7.5.2010 : Samið við Mýflug um sjúkraflug í Vestmannaeyjum

Sjúkratryggingar Íslands ganga í dag frá tímabundnu samkomulagi við Mýflug vegna sjúkraflugs á Vestmannaeyjasvæði. Með samningnum verður þjónusta í sjúkraflugi vegna Vestmannaeyja tryggð. Flugfélag Vestmannaeyja, sem sinnt hefur fluginu undanfarið, hefur misst flugrekstrarleyfi sitt. Því hafa Sjúkratryggingar Íslands sagt upp samningi sínum við félagið.

Lesa meira
 
Aukin endurgreiðsla umtalsverðs tannlæknakostnaðar

15.4.2010 : Afgreiðsla umsókna hafin vegna reglugerðar um alvarlegar tannviðgerðir

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa nú hrint í framkvæmd reglugerð nr. 190/2010 vegna alvarlegra tannviðgerða. Afgreiðsla umsókna vegna endurgreiðslu er hafin og hefur SÍ sent þeim einstaklingum sem þegar höfðu lagt inn umsókn bréf þess efnis. Jafnframt munu Sjúkratryggingar hafa samband við þá sem ætla má að eigi rétt skv. reglugerðinni. Umsóknarform fyrir endurgreiðslu hafa einnig verið birt á vef SÍ, sjá neðangreindan hlekk.

Lesa meira
 

9.4.2010 : Afsláttur vegna heilbrigðisþjónustu

Um 15.000 sjúkratryggðum einstaklingum hafa verið endurgreiddar 63 milljónir króna af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) vegna afsláttar sem ekki var hægt að borga út þegar heilbrigðisþjónusta var veitt á síðasta ári. Hægt er að nálgast greiðsluskjöl í Réttindagátt og senda bankareikning vegna endurgreiðslu á www.sjukra.is. Lesa meira
 

29.3.2010 : Sparnaðaraðgerðir drógu úr auknum lyfjakostnaði

Samkvæmt ársskýrslu Lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands jókst lyfjakostnaður sjúkratrygginga minna á árinu 2009 en búist var við, eða um 16%. Ýmsar sparnaðaraðgerðir drógu úr enn frekari kostnaði vegna falls krónunnar.

Lesa meira
 
Afsláttarkortabreyting

24.3.2010 : Nú eru afsláttarkort og greiðsluskjöl rafræn

Afsláttarkortakerfi vegna heilbrigðisþjónustu hefur verið breytt frá 1. janúar 2010. Greiða þarf fyrir heilbrigðisþjónustu án afsláttar en fá síðan endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands. Þeir sem ekki geta beðið eftir endurgreiðslu geta nálgast afsláttarkort greiðsluskjöl á A4 formi í Réttindagátt  á sjukra.is.

Lesa meira
 
Undirritun samnings vegna krabbameinsleitar

22.3.2010 : Skipulögð leit að krabbameini tryggð til næstu ára

Þjónustusamningur milli Krabbameinsfélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um skipulagða leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum kvenna var undirritaður þann 18. mars í aðalstöðvum Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra var viðstödd undirritunina og staðfesti samninginn.

Lesa meira
 
Þórður yfirlæknir með Guðrúnu og Önnu í Lyfjadeild

18.3.2010 : Tímamót í rafrænni þjónustu

Nú fyrir stuttu voru tímamót í sögu Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) þegar Heilsugæslustöðin í Efra – Breiðholti sendi stofnuninni fyrstu rafrænu umsóknina (Umsókn um lyfjaskírteini). Er um að ræða mikinn ávinning fyrir viðskiptavinina.  Af þessu tilefni veittu starfsmenn lyfjadeildar SÍ yfirlækni Heilsugæslustöðvarinnar blómvönd.

Lesa meira
 
Nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar

17.3.2010 : Opið hús í Hjálpartækjamiðstöð

Hjálpartækjamiðstöð SÍ er flutt í nýtt og rýmra húsnæði að Vínlandsleið 16 í Reykjavík og af því tilefni  verður opið hús fimmtudaginn 18. mars milli kl. 13.00 – 15.00.

Lesa meira
 

4.3.2010 : Breyting á greiðsluþátttöku lyfja

Heilbrigðisráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum. Reglugerðin tók gildi 1. mars sl. Á vef Heilbrigðisráðuneytisins segir:

Lesa meira
 
Ferðakostnaður

18.2.2010 : Kílómetragjald vegna ferðakostnaðar innanlands hækkar

Frá og með 1. febrúar 2010 hækkar kílómetragjald ferðakostnaðar úr 26,20 kr upp í 28,20 kr. Sjúkratryggðir einstaklingar geta átt rétt á greiðslu ferðakostnaðar vegna sjúkdómsmeðferða sé viðeigandi þjónusta ekki í boði á heimaslóðum. 

Lesa meira
 
Álfheiður Ingadóttir ávarpar

16.2.2010 : Nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ og nýr vefur SÍ (www.sjukra.is)

Nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og nýtt vefsvæði SÍ voru tekin í notkun í dag þegar Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra og Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður SÍ, opnuðu formlega húsnæðið og vefinn.

Lesa meira
 
Sjúkra

4.2.2010 : Rammasamningur talmeinafræðinga

Meðferð við tal- og málmeinum. Til að veita meðferð við tal- og málmeinum hjá einstaklingum sem eru sjúkratryggðir skv. lögum nr. 112/2008 óska Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) eftir sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum til að gerast aðilar að rammasamningi um þjónustuna.

Lesa meira
 

20.1.2010 : Gjöld 60 - 69 ára með óskertan ellilífeyri verða óbreytt

Heilbrigðisráðuneyti hefur sett nýja reglugerð um hlutdeild í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.*  Samkvæmt henni greiða þeir, sem eru 60-69 ára og eru með óskertan ellilífeyri sama gjald fyrir heilbrigðisþjónustu og aldraðir 70 ára og eldri og öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris áður. Reglugerðin gildir frá 1. janúar 2010.

Þann 1. janúar 2010 hækkuðu almennt grunnupphæðir vegna heilbrigðisþjónustu og afsláttarviðmið nema vegna barna.

Lesa meira
 
Aukin endurgreiðsla umtalsverðs tannlæknakostnaðar

18.1.2010 : Aukin endurgreiðsla umtalsverðs tannlæknakostnaðar

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að Sjúkratryggingar Íslands endurgreiði sjúkratryggðum hluta umtalsverðs útlagðs kostnaðar við tannlækningar á árunum 2008 og 2009 vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa á tímabilinu.
Lesa meira
 

28.12.2009 : Breytt afsláttarkort frá 1. janúar 2010

Sjúkratryggingar Íslands munu þann 1. janúar 2010 hefja rafræna útgáfu á afsláttarkortum og greiðsluskjölum til einstaklinga vegna heilbrigðisþjónustu. Hætt verður útgáfu kortsins á plastformi en greiðsluskjöl verða fyrst um sinn send á pappírsformi til viðbótar við rafræna útgáfu. Lesa meira
 
SjukratryggingarMerki_skja

4.9.2009 : Breytt greiðsluþátttaka vegna lýtalækninga

Heilbrigðisráðuneytið hefur sett nýja reglugerð* um lýtalækningar sem sjúkratryggingar taka til og tekur hún gildi þann 1. október n.k. Í reglugerðinni er kveðið á um lýtalækningar sem sjúkratryggingar taka til, hvort sem læknisþjónustan er veitt á sjúkrahúsi sem rekið er af ríkinu, hjá sjálfstætt starfandi sérgreinalækni eða öðrum aðilum sem Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa samið við.
Lesa meira
 
Sjúkratryggingar Íslands

1.10.2008 : Sjúkratryggingar Íslands

Sjúkratryggingar Íslands, sjúkratryggingastofnun, tekur til starfa í dag, miðvikudaginn 1. október. Markmið Sjúkratrygginga Íslands og viðfangsefni er að semja um og kaupa heilbrigðisþjónustu.

Á þetta við um þann þátt sem áður var á hendi samninganefndar heilbrigðisráðherra ásamt samningum við sjúkrahús, heilsugæslustöðvar og aðra aðila sem veita þjónustu á heilbrigðissviði. Ætla má að umfang þessara samninga nemi um 100 milljörðum króna á árinu 2010.

Lesa meira
 

 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica