Afgreiðsla afsláttarkorts og lyfjaskírteinis nú í Réttindagátt (mínar síður)

  • RG

Réttindagátt „mínar síður“ er fyrir einstaklinga og rafræn samskipti þeirra við Sjúkratryggingar Íslands. Í Réttindagáttinni geta einstaklingar fengið upplýsingar um réttindi sín vegna heilbrigðisþjónustu. Þar er hægt að skoða:

 
  •  Réttindastöðu

Hægt er að skoða réttindastöðu sína gagnvart sjúkratryggingum, þ.e. hvort einstaklingur sé sjúkratryggður og hvort hann hafi hlotið réttindi sem eykur þátttöku SÍ í læknisþjónustu, lyfjum og annarri heilbrigðisþjónustu.

  • Afsláttarkort vegna heilbrigðisþjónustu

Skoða má tilurð afsláttarkorts - skoða stöðu afsláttarkortsins og prentað það út sé réttur til staðar. Með afsláttarkorti greiða einstaklingar minna fyrir heilbrigðisþjónustu. Einnig er hægt að skoða kvittanir frá læknum sem SÍ hefur móttekið sem og séð hvernig mögulegum endurgreiðslum er háttað.

  • Lyfjaskírteini

Hægt er að skoða tilurð lyfjaskírteinis –hvaða lyf skírteinið gildir fyrir og gildistíma.

  • Greiðsluskjöl og bréf

Nálgast má greiðsluskjöl og bréf sem gefin hafa verið út vegna viðskipta við SÍ.

Réttindagáttin er í stöðugri þróun og munu nýjar þjónustur bætast við í náinni framtíð.

Leiðbeiningar vegna innskráningar

  1. Þú smellir á innskráningarhnappinn hér fyrir neðan.
  2. Á innskráningarsíðu smellir þú á innskrá.
  3. Þú skráir þig með veflykli skattyfirvalda eða með rafrænum skilríkjum (Upplýsingar um veflykil er á http://www.skattur.is/).
  4. "Mín síða" á Réttindagátt birtist.

Skráðu þig inn með því að smella á myndina:

Aðstoð og upplýsingar


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica