Slys við heimilisstörf
Þeir sem fylla út viðeigandi reit á skattframtali í byrjun árs teljast slysatryggðir við heimilisstörf.
Þá er sett x við reitinn „slysatrygging við heimilisstörf".
Slysatryggingin gildir frá 1. ágúst það ár sem skattframtali er skilað og gildir til 31. júlí árið eftir. Ekki er unnt að óska eftir slysatryggingu við heimilisstörf eftir að skattyfirvöld hafa móttekið skattskýrslu.
Öll slys þarf að tilkynna innan eins árs. Mikilvægt er að tilkynningar séu rétt útfylltar og í frumriti.
Með tilkynningu um slys þarf að fylgja læknisvottorð vegna slyss (áverkavottorð) frá fyrsta lækni sem leitað var til eftir slys.
Slysatryggingin nær til heimilisstarfa sem innt eru af hendi hér á landi:
- Á heimili hins tryggða
- Í bílskúr og geymslum við heimili hins tryggða
- Í afmörkuðum garði umhverfis heimili hins tryggða
- Í sumarbústað þar sem hinn tryggði dvelur
Til heimilisstarfa sem falla undir slysatryggingu teljast eftirtalin störf:
- Hefðbundin heimilisstörf, svo sem matseld og þrif
- Umönnun sjúkra, aldraðra og barna
- Almenn viðhaldsverkefni, svo sem málning innanhúss og minni háttar viðgerðir. Með minni háttar viðgerðum er átt við einfaldar viðgerðir með einföldum og hættulitlum verkfærum sem almennt má gera ráð fyrir að séu til á flestum heimilum og viðgerðirnar séu á færi flestra að sinna
- Hefðbundin garðyrkjustörf
Undanskilin slysatryggingu við heimilisstörf eru meðal annars:
- Slys sem einstaklingar verða fyrir við aðrar viðhaldsframkvæmdir en nefndar eru að ofan svo sem múrbrot, uppsetningu innréttinga, lagningu gólfefna, málningu utanhúss og bílaviðgerðir. Aðrar viðhaldsframkvæmdir þar sem notuð eru verkfæri sem stafað getur hætta af, svo sem rafknúnar sagir, eru einnig undanskildar slysatryggingu við heimilisstörf.
- Slys sem einstaklingar verða fyrir við ýmsar daglegar athafnir sem ekki teljast til hefðbundinna heimilisstarfa svo sem að klæða sig og baða, borða, svara í síma og sækja póst.
- Slys sem einstaklingar verða fyrir á ferðalögum, svo sem tjaldi, hjólhýsi og á hótelum.
- Næsta skref Eyðublað Tilkynning um slys - önnur en sjóslys



