Sjóslys
Atvinnurekandi skal senda inn tilkynninguna þegar um sjóslys er að ræða.
Öll slys ber að tilkynna innan eins árs. Mikilvægt er að tilkynningar séu rétt útfylltar og í frumriti.
Skilyrði er að viðkomandi hafi fengið greidd laun vegna vinnunnar eða ef um sjálfstæðan atvinnurekanda er að ræða þá reiknað endurgjald.
Þegar slys ber að höndum og ætla má að það sé bótaskylt skal það tilkynnt til þjónustumiðstöðvar Sjúkratrygginga og Tryggingastofnunar á Laugavegi 114, Reykjavík eða til umboða hennar úti á landi.
Með tilkynningu um slys þarf að fylgja læknisvottorð vegna slyss (áverkavottorð) frá fyrsta lækni sem leitað var til eftir slys. Einnig þarf að fylgja afrit af dagbók skips eða útdráttur úr dagbók skips undirritaður af skipstjóra.
Önnur fylgiskjöl:
- Afrit af sjóprófum eða lögregluskýrslu
- Læknisvottorð vegna slyss (áverkavottorð)
- Kvittanir/reikningar vegna útlagðs sjúkrakostnaðar
- Aflanótur, launaútreikningar og kvittað launauppgjör
- Vottorð sýslumanns, ef um banaslys er að ræða
Um tilkynningaskyldu
Hinum slasaða, eða öðrum sem vilja gera kröfu til bóta, ber að fylgjast með því að tilkynningaskyldu sé fullnægt. Leita má aðstoðar lögreglu ef atvinnurekandi vanrækir að tilkynna um slysið.
- Næsta skref Eyðublað Tilkynning um slys á sjómanni



