Íþróttaslys
Þjálfari tilkynnir slysið ef um íþróttaslys er að ræða.
Öll slys ber að tilkynna innan eins árs. Mikilvægt er að tilkynningar séu rétt útfylltar og í frumriti.
Aldurstakmark miðast við íþróttafólk sem orðið er 16 ára, tekur þátt í íþróttaiðkunum og slasast við æfingar, sýningar eða keppni.
Með íþróttaiðkun er átt við að viðkomandi æfi reglubundið hjá íþróttafélagi innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) eða Kraftlyftingasambands Íslands undir stjórn þjálfara.
Þegar slys ber að höndum og ætla má að það sé bótaskylt skal það tilkynnt til þjónustumiðstöðvar Sjúkratrygginga, Laugavegi 114, Reykjavík eða til umboða úti á landi.
Læknisvottorð vegna slyss (áverkavottorð) frá þeim fyrsta lækni er leitað var til eftir slys þarf að fylgja tilkynningunni. Í áverkavottorði skal koma fram tímabil óvinnufærni.
Önnur fylgiskjöl:
- Læknisvottorð vegna slyss (áverkavottorð)
- Kvittanir/reikningar vegna útlagðs sjúkrakostnaðar
- Vottorð sýslumanns ef um banaslys er að ræða
Ef um varanlegar afleiðingar slyssins verður að ræða er möguleiki á greiðslu örorkubóta samkvæmt IV. kafla laga um almannatryggingar þó önnur skilyrði séu ekki uppfyllt.
- Næsta skref Eyðublað Tilkynning um slys - önnur en sjóslys



