Greiðslumerking lyfja:

Lyf skiptast í grófum dráttum í fjóra flokka eftir greiðsluskiptingu milli sjúkratrygginga og einstaklinga. Greiðsla sjúkratrygginga reiknast út frá viðmiðunarverði lyfsins, sem er lægsta verð sambærilegs lyfs á markaði. Ef verð ávísað lyfs er hærra en viðmiðunarverð lyfsins, greiðir sjúklingur mismuninn.

Greiðsluskipting milli Sjúkratrygginga Íslands og sjúklinga

0 - merkt = einstaklingur greiðir lyfið að fullu.

E- merkt = einstaklingur greiðir að hámarki 6.500 kr. fyrir hverja lyfjaávísun,  þó greiða elli/örorkulífeyrisþegar, börn yngri en 18 ára og atvinnulausir að hámarki 1.800 kr.

B- merkt = einstaklingur greiðir að hámarki 4.400 kr. fyrir hverja lyfjaávísun, þó greiða elli-/örorkulífeyrisþegar, börn yngri en 18 ára og atvinnulausir að hámarki 1.400 kr.

* - merkt = sjúkratryggingar greiða lyfið að fullu.

 

 


 


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica