Lyf
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í lyfjakostnaði sjúkratryggðra einstaklinga samkvæmt reglugerð.
Lyfjagreiðslunefnd ákvarðar lyfjaverð og greiðsluþátttöku sem birt er í lyfjaverðskrá Greiðsluskipting milli sjúklings og Sjúkratrygginga er mismunandi eftir tegund sjúkdóms og aldri einstaklinga. Elli- og örorkulífeyrisþegar og börn greiða lægra gjald en almennt gerist.Sjá greiðsluskiptingu milli Sjúkratrygginga Íslands og sjúklinga.
Einstaklingar með fullar atvinnuleysisbætur geta fengið endurgreiðslur vegna kaupa á lyfjum og greiða þá sama gjald og elli/orkulífeyrisþegar og börn. Sjá nánar um endurgreiðslur til atvinnulausra.
Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að ákvarða aukna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna kaupa á lyfjum og gefa út lyfjaskírteini því til staðfestingar. Læknir getur sótt um lyfjaskírteini fyrir einstakling samkvæmt vinnureglum.
Einstaklingar/fjölskyldur með umtalsverðan kostnað vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar geta átt rétt á endurgreiðslu kostnaðar að hluta. Sjá nánar um endurgreiðslur.
- Tilvísun Reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum nr. 403/2010
- 1. breyting nr.1050/2010
- 2. breyting nr. 426/2011
- 3. breyting 520/2011
- 4. breyting 1170/2011
- 5. breyting 238/2012
- Reglugerð um endurgreiðslu á umtalsverðum útgjöldum sjúkratryggðra vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar nr. 355/2005
- Tengt efni Greiðsluskipting milli Sjúkratrygginga Íslands og sjúklinga
- Tengt efni Vinnureglur fyrir lyfjaskírteini
- Tengt efni Fréttabréf lyfjadeildar
- Tengt efni Evrópska sjúkratryggingakortið




