Atvinnulausir og lyf
Einstaklingar sem fá greiddar fullar atvinnuleysisbætur geta fengið endurgreiðslur vegna kaupa á lyfjum og greiða þá sama gjald og elli- og örorkulífeyrisþegar og börn.
Hverjir eiga rétt á endurgreiðslu?
Þetta á einungis við um þá sem fá greiddar fullar atvinnuleysisbætur.
Hvernig fæ ég endurgreiðslu?
Atvinnulausir greiða almennt gjald við kaup á lyfjum en fá síðan sjálfkrafa endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands ef staðfesting Vinnumálastofnunar liggur fyrir.
Staðfesta þarf á vef Vinnumálastofnunar að stofnuninni sé veitt heimild til að upplýsa Sjúkratryggingar Íslands um greiðslur atvinnuleysisbóta. Það er gert í rafrænni umsókn þegar fyrst er sótt um atvinnuleysisbætur.
Þeir sem eru þegar skráðir hjá Vinnumálastofnun en hafa ekki veitt þessa heimild þurfa að fara aftur inn á sitt heimasvæði og geta þar merkt við réttan reit.
Sjúkratryggingar Íslands fá staðfestingu frá Vinnumálastofnun um hverjir fái fullar atvinnuleysisbætur og upplýsingar um bankareikninga þeirra. Lagt er inn á sama reikning og bæturnar fara inn á. Kvittanir fyrir endurgreiðslum eru ekki sendar með landpósti en þær má nálgast í réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands. Réttindagáttin er aðgengileg á forsíðu. Þaðan er farið á þjónustuvef ríksiskattstjóra en til að fá aðgang að honum þarf veflykil skattsins. Upplýsingar um veflykla er að finna á innskráningarsíðunni.
Endurgreiðslan fer fram 10-40 dögum dögum eftir kaup á lyfjunum.



