Sótt um hjálpartæki
Heilbrigðisstarfsmaður eins og læknir, iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari metur þörf fyrir hjálpartækið og fyllir út sérstaka umsókn.
Sækja verður um hjálpartæki áður en þau eru keypt.
Hvernig er sótt um hjálpartæki?
Umsóknareyðublaðið „Umsókn um styrk til kaupa á hjálpartæki“ er fyllt út af umsækjanda og heilbrigðisstarfsmanni. Því er komið til Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ, Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík.
Við fyrstu umsókn verður læknir að fylla út reitinn „umsögn læknis“ á umsóknareyðublaðinu. Ef breyting verður á sjúkdómsástandi eða fötlun getur þurft nýtt læknisvottorð.
Lýsing á færni og rökstuðningur fyrir hjálpartæki þarf ávallt að fylgja umsókn.
Til hliðsjónar eru hafðir sérstakir gátlistar með umsóknum.
Þau hjálpartæki sem Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í að greiða fyrir má sjá í vörulistum hér á vefnum.
Fleira sem hafa þarf í huga þegar sótt er um hjálpartæki:
- Heimild frá Sjúkratryggingum Íslands verður að liggja fyrir ef krafist er greiðsluþátttöku frá stofnuninni.
- Framvísa verður frumriti af samþykkt Sjúkratrygginga Íslands við afgreiðslu hjálpartækja frá hjálpartækjaseljendum.
- Framvísa verður innkaupaheimild og skilríkjum við afgreiðslu einnota hjálpartækja svo sem sykursýkisvara og stómavara.
- Við innheimtu skal frumrit af samþykkt Sjúkratrygginga fylgja reikningi (frumrit af reikningi). Einnig verður kvittun móttakanda (fullt nafn) að vera til staðar eða kvittun frá pósthúsi / flutningafyrirtæki (vegna sendinga út á land).
- Ef ekki er samræmi milli þeirra hjálpartækja sem sótt er um og þeirra læknisfræðilegu upplýsinga sem áður hafa borist Sjúkratryggingum Íslands með umsókn um hjálpartæki þarf nýtt læknisvottorð.
- Eftir að hjálpartæki hefur verið samþykkt verður að leysa tækið út innan árs.
- Tilvísun Reglugerð um styrki vegna hjálpartæka nr. 1138/2008 með síðari breytingum
- Tilvísun Reglugerð um endurgreiðslu slysatrygginga á nauðsynlegum kostnaði vegna sjúkrahjálpar nr. 541/2002
- Næsta skref Eyðublað Styrkur vegna hjálpartækis



