Þjálfun

Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða kostnað eða veita styrki vegna þjálfunar(Sjúkra- iðju- og talþjálfunar)

Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris.

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða 30% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun á einkastofum sjúkraþjálfara fyrstu 30 skiptin á hverju 12 mánaða tímabili.  Sjúkraþjálfari þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til Sjúkratrygginga Íslands.  Ef um er að ræða þjálfun á göngudeild heilbrigðisstofnunar er sótt um viðbótarþjálfun þangað

Réttur hins sjúkratryggða á 20 skiptum helst í 365 daga talið frá fyrstu meðferð að því gefnu að viðkomandi sé með beiðni um sjúkraþjálfun frá lækni.

Ef viðbótarmeðferð hefur verið samþykkt og farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar 60% kostnaðar vegna meðferða umfram 30 á tímabilinu.

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands  og göngudeilda heilbrigðisstofnana vegna þjálfunar fer eftir gildandi reglugerð sem gefin er út af velferðarráðuneyti.

Þjálfunin verður að fara fram á stofu þjálfara sem starfar samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands eða á göngudeild heilbrigðisstofnana.

Hærri styrkir fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá TR.

 Greidd eru 80% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun fyrstu 30 skiptin fyrir:

  • börn og unglinga yngri en 18 ára
  • einstaklinga með umönnunarkort frá Tryggingastofnun
  • lífeyrisþega með tekjutryggingu

Sjúkraþjálfari þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til Sjúkratrygginga Íslands

Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% kostnaðar vegna fyrstu 30 meðferða aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar.  Sjúkraþjálfari þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til Sjúkratrygginga Íslands.  Ef viðbótarmeðferð hefur verið samþykkt og farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar 80% kostnaðar vegna meðferða umfram 30 á tímabilinu.

Fyrir lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu greiða Sjúkratryggingar 90% vegna samþykktra meðferða umfram 30 skipti.

Lífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu fá 100% greiðsluþátttöku eftir 30 skiptin. Þetta á einnig við um börn og einstaklinga með umönnunarkort.

 


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica