Talmeinafræðingar án samnings

Samkvæmt reglugerð veita Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) styrk vegna talþjálfunar hjá þeim talmeinafræðingum sem starfa án samnings við SÍ. Sjá neðangreint ferli. ATH: Reglugerðin rennur út 31. desember 2011 samkvæmt reglugerð 1129/2011. Langflestir talmeinafræðingar starfa skv. samningi um talþjálfun við SÍ og tekur stofnunin þátt í greiðslu meðferða til þeirra. Sjá lista yfir talmeinafræðinga á samningi við SÍ og upplýsingar um ferli talþjálfunar.


Ferli beiðna

Byrja þarf á því að fara til læknis og fá beiðni um greiningu fyrir talþjálfun, síðan er beiðni send til Sjúkratrygginga Íslands.

Heimilisfangið er: Laugavegi 114-18, 150 Reykjavík.

Þegar samþykki Sjúkratrygginga liggur fyrir er farið í greiningu hjá talmeinafræðingi og eftir að niðurstöður hennar liggja fyrir er farið aftur til læknis með greininguna. Læknirinn gefur þá út beiðni um þjálfun og tekur fram fjölda meðferðarskipta (verður að standa í beiðni) að hámarki 20 meðferðir.

Beiðni þarf síðan að berast Sjúkratryggingum ásamt niðurstöðu greiningar. Þegar um er að ræða talþjálfun utan samninga eins og hér sér sjúklingurinn um að koma beiðni til SÍ. Sjúkratryggingar afgreiða beiðnina og getur þá viðkomandi farið í talþjálfun og fengið styrk hjá Sjúkratryggingum ef samþykki liggur fyrir frá SÍ.

Rétt útfyllt greiðslukvittun er forsenda styrks

Einstaklingur greiðir meðferð að fullu hjá talmeinafræðingi, en styrkur er veittur gegn framvísun greiðslukvittunar. Á greiðslukvittun þarf eftirfarandi að koma fram:

  • Nafn talmeinafræðings og starfsstöð hans
  • Nafn og kennitala sjúklings
  • Hvaða upphæð er greidd fyrir hverja meðferð
  • Hvaða dag verk var unnið
  • Hvenær hver einstakur meðferðartími hófst og hvenær honum lauk (ekki er nóg að segja t.d. 40 mínútur)
  • Tegund meðferðar

Einstaklingur skal í lok hvers meðferðarskiptis staðfesta með undirskrift sinni á greiðslukvittun að meðferð hafi átt sér stað og að hún sé rétt skráð.

Upphæð styrkja

Sjúkratryggingar Íslands greiða styrk vegna meðferðar samkvæmt neðangreindum töflum A og B. Aðeins er veittur styrkur vegna einnar meðferðar á dag.

 A. Fyrir sjúkratryggð börn og unglinga yngri en 18 ára og lífeyrisþega
Kr. 
 1. Fyrsta greining tal-/málmeina
     (þó ekki ef eingöngu er um að ræða framburðarmat)
     Hámark einu sinni fyrir hvern sjúkling
 6.000
 2.   Fyrir greiningu á framburði eða endurmat, hámark einu sinni á 12  mánaða fresti
       Fyrir hvern sjúkling
 
4.000
 3.   Fyrir einstaklingsmeðferð, tími sjúklings með talmeinafræðingi a.m.k. 40 mín.  2.000
 4.   Fyrir einstaklingsmeðferð, tími sjúklings með talmeinafræðingi a.m.k. 65 mín.  3.000
 5.  Fyrir ráðgjafartíma á stofu, a.m.k. 50 mín., hámark tvisvar á ári fyrir hvern sjúkling
 2.000
 B. Fyrir aðra sjúkratryggða einstaklinga
 Kr.

1.   Fyrsta greining tal-/málmeina (þó ekki ef eingöngu er um að ræða framburðarmat)

  Hámark einu sinni fyrir hvern sjúkling  

 3.000
 2.   Fyrir greiningu á framburði eða endurmat, hámark einu sinni á 12 mánaða fresti
        Fyrir hvern sjúkling  

 
 2.000
 3.   Fyrir einstaklingsmeðferð, tími sjúklings með talmeinafræðingi a.m.k. 40 mín  1.000
 4.   Fyrir einstaklingsmeðferð, tími sjúklings með talmeinafræðingi a.m.k. 65 mín.
 1.500

Vegna meðferða frá og með 15. febrúar 2008 hafa SÍ heimild til að veita tvöfaldan styrk ef viðkomandi hefur þegar farið í 30 meðferðir eða fleiri á gildandi þjálfunartímabili (365 daga tímabil talið frá fyrstu meðferð) vegna meðferða hjá talþjálfurum sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, styrkur verður þó aldrei hærri en greiðsla til talmeinafræðings samkvæmt greiðslukvittun.

  • Næsta skref Eyðublað Beiðni um talþjálfun. Hjá talmeinafræðingi sem starfar án samnings við heilbrigðisráðuneyti.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica