Talþjálfun
Rammasamningur gildir milli Sjúkratrygginga Íslands og talmeinafræðinga. Hér eru að finna upplýsingar um ferli talþjálfunar hjá bæði þeim talmeinafræðingum sem eru með samning og þeirra sem starfa án samnings. Mikilvægt er að notendur kynni sér forsendur beggja aðila.
Meðferð hjá talmeinafræðingum sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða 30% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun á einkastofum talmeinafræðinga fyrstu 30 skiptin á hverju 12 mánaða tímabili fyrir einstaklinga á aldrinum 18 til og með 66 ára sem ekki eru lífeyrisþegar. Talmeinafræðingur þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til SÍ. Réttur hins sjúkratryggða á 20 skiptum helst í 365 daga talið frá fyrstu meðferð að því gefnu að viðkomandi sé með beiðni um talþjálfun frá lækni.
Áður en þjálfun hefst þarf að liggja fyrir beiðni læknis um talþjálfun. Þá beiðni skal afhenda talmeinafræðingi sem sér svo um að senda beiðnina til SÍ
Ef viðbótarþjálfun á stofu er samþykkt og ef farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða SÍ 60% kostnaðarins út tímabilið. Greiðsluþátttaka SÍ fer eftir gildandi reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til sem gefin er út af velferðarráðuneyti.
Hærri greiðsluþátttaka fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort.
Greidd eru 80% af kostnaði við nauðsynlega talþjálfun fyrstu 30 skiptin fyrir:
- börn og unglinga yngri en 18 ára
- einstaklinga með umönnunarkort frá Tryggingastofnun
- lífeyrisþega með tekjutryggingu
Talmeinafræðingur þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til Sjúkratrygginga Íslands.
Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% kostnaðar vegna fyrstu 30 meðferða aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar. Talmeinafræðingur þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til Sjúkratrygginga Íslands. Ef viðbótarþjálfun á stofu er samþykkt og ef farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar Íslands 80% kostnaðarins út tímabilið.
Fyrir lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu greiða Sjúkratryggingar 90% vegna samþykktra meðferða umfram 30 skipti.
Lífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu fá 100% greiðsluþátttöku eftir 30 skiptin. Þetta á einnig við um börn og einstaklinga með umönnunarkort.
Meðferðarform.
Athugið að neðangreint gildir einungis vegna talþjálfunar hjá þeim talmeinafræðingum sem eru með samning.
Greining: Við fyrstu komu til talmeinafræðings fer fram Greining þar sem talmein eru greind og sjúkrasaga tekin. Meðferðaráætlun er undirbúin og mat lagt á þörf og hæfni sjúklings til notkunar á tjáskiptatækjum. Greining getur farið fram í eitt skipti við upphaf meðferðar eða samhliða meðferð í allt að fimm skipti. Aðeins er heimild fyrir einni greiningu á hverju 12 mánaða tímabili hvort sem hún er gerð í eitt skipti eða oftar og þá samhliða meðferð.
Ráðgjöf á stofu: Veitt er ítarleg ráðgjöf um sérsniðna málörvun til forráðamanns og viðkomandi fagaðila (kennara eða þroskaþjálfara).
Ráðgjöfin á aðeins við í eftirfarandi tilvikum:
1. Í kjölfar skila á niðurstöðum prófana
2. Þegar gert er hlé á meðferð
3. Þegar meðferð lýkur
Ráðgjöf á stofu má veita tvisvar á ári pr. sjúkling
Hópmeðferð: 3-5 sjúklingar með svipuð talmein sækja meðferð saman.
Eftirtaldir talmeinafræðingar eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands:
| Nafn | Bæjarfélag |
|---|---|
| Anna María Gunnarsdóttir | Reykjavík |
| Ásta Sigurbjörnsdóttir | Kópavogur |
| Ásthildur Bj. Snorradóttir | Reykjavík |
| Elmar Þórðarson | Akranes |
| Eyrún Ísfold Gísladóttir | Reykjavík |
| Eyrún S. Ingvadóttir | Akureyri |
| Gréta Pálsdóttir | Kópavogur |
| Halldóra Haraldsdóttir | Akureyri |
| Hólmfríður Árnadóttir | Selfoss |
| Ingibjörg Huld Þórðardóttir | Sauðárkrókur |
| Jóhanna Einarsdóttir | Reykjavík |
| Kristinn Hilmarsson | Reykjanesbær |
| Signý Einarsdóttir | Kópavogur |
| Sigríður Ísleifsdóttir | Kópavogur |
| Sonja Magnúsdóttir | Akureyri |
| Valdís Guðjónsdóttir | Hafnarfjörður |
| Valdís Ingibjörg Jónsdóttir | Akureyri |
| Þóra Sæunn Úlfsdóttir | Reykjavík |
Meðferð talmeinafræðinga sem eru án samnings.
Um þetta gildir reglugerð nr. 1166/2007 um styrki vegna þjónustu talmeinafræðinga án samnings.
Forsenda fyrir greiðslu styrks er að fyrirfram hafi verið aflað greiðsluheimildar hjá Sjúkratryggingum Íslands.
Byrja þarf á því að fara til læknis og fá beiðni um greiningu fyrir talþjálfun, síðan er beiðni send til Sjúkratrygginga. Þegar samþykki Sjúkratrygginga liggur fyrir er farið í greiningu hjá talmeinafræðingi og eftir að niðurstöður hennar liggja fyrir er farið aftur til læknis með greininguna.
Læknirinn gefur þá út beiðni um þjálfun og tekur fram fjölda meðferðarskipta (verður að standa í beiðni) að hámarki 20 meðferðir. Beiðni þarf síðan að berast Sjúkratryggingum ásamt niðurstöðu greiningar, síðan úrskurða Sjúkratryggingar og getur þá viðkomandi farið í talþjálfun og fengið styrk hjá Sjúkratryggingum.
Einstaklingur greiðir meðferð að fullu hjá talmeinafræðingi, en styrkur er veittur gegn framvísun greiðslukvittunar. Á greiðslukvittun þarf eftirfarandi að koma fram:
- Nafn talmeinafræðings og starfsstöð hans
- Nafn og kennitala sjúklings
- Hvaða upphæð er greidd fyrir hverja meðferð
- Hvaða dag verk var unnið
- Hvenær hver einstakur meðferðartími hófst og hvenær honum lauk (ekki er nóg að það komi fram t.d. 40 mínútur)
- Tegund meðferðar
- Einstaklingur skal í lok hvers meðferðarskiptis staðfesta með undirskrift sinni á greiðslukvittun að meðferð hafi átt sér stað og að hún sé rétt skráð.
- Reglugerð nr. 1186/2011 um (2.) breytingu á reglugerð nr. 721/2009 um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun.
- Reglugerð nr. 519/2011um (1.) breytingu á reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til nr. 721/2009
- Tilvísun Reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til nr. 721/2009
- Næsta skref Eyðublað Beiðni um talþjálfun. Hjá talmeinafræðingi sem starfar samkvæmt samningi við heilbrigðisráðuneyti.
- Tengt efni Gjaldskrá talþjálfunar
- Tengt efni Talmeinafræðingar sem eru án samnings við SÍ



