Icelandic Health Insurance

Sjúkraþjálfun

Áður en farið er í sjúkraþjálfun þarf sjúklingur að leita til læknis og fá beiðni fyrir sjúkraþjálfun. Þá beiðni skal hafa meðferðis til sjúkraþjálfara.

Ekki þarf að senda beiðni vegna sjúkraþjálfunar til Sjúkratrygginga Íslands þar sem þjálfarar eru í beinum rafrænum samskiptum við stofnunina.

Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris 

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða 30% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun á einkastofum sjúkraþjálfara fyrstu 25 skiptin á hverju 12 mánaða tímabili. Réttur hins sjúkratryggða á 25 skiptum helst í  365 daga talið frá fyrstu meðferð

Ef nauðsyn er talin vera fyrir fleiri skiptum en 25 þarf sjúkraþjálfari að sækja um viðbótarþjálfun til SÍ ef um er að ræða þjálfun á einkastofu.  Ef um er að ræða þjálfun á göngudeild heilbrigðisstofnunar er sótt um viðbótarþjálfun þangað.  Ef viðbótarþjálfun á stofu er samþykkt  greiða Sjúkratryggingar Íslands 60% kostnaðarins út árið. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands  og göngudeilda heilbrigðisstofnana vegna þjálfunar fer eftir gildandi reglugerð sem gefin er út af heilbrigðisráðuneyti. Sjá gjaldskrá hér til hliðar í Tengt efni.

Nánari upplýsingar um skilyrði til að fá þjálfun umfram 25 meðferðir má nálgast í Tilvísun í vinnureglur SÍ vegna sjúkraþjálfunar hér að neðan.

Hærri styrkir fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá TR.

Greidd eru 80% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun fyrstu 25 skiptin fyrir:

  • börn og unglinga yngri en 18 ára
  • einstaklinga með umönnunarkort frá Tryggingastofnun
  • lífeyrisþega með tekjutryggingu

Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% kostnaðar vegna fyrstu 25 meðferða aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar. Ef viðkomandi á samþykktar fleiri meðferðir en 25 greiða Sjúkratryggingar 80% út það tímabil.

Fyrir lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu greiða Sjúkratryggingar 90% vegna samþykktra meðferða umfram 25 skipti.

Lífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu fá 100% greiðsluþátttöku eftir 25 skiptin. Þetta á einnig við um börn og einstaklinga með umönnunarkort. 

Sjúkraþjálfun barna í grunnskólum

Í rammasamningi Sjúkratrygginga Ísland og sjúkraþjálfara sem starfa samkvæmt samningnum er fjallað um sjúkraþjálfun innan veggja grunnskólanna.  Sjúkraþjálfari þarf að leita samþykkis SÍ fyrirfram. Um er að ræða þjálfun barna sem nota gönguhjálpartæki eða hjólastóla til að komast á milli staða og þurfa á þjálfun oftar en einu sinni í viku. Sjúkraþjálfari getur þá farið í grunnskólann og sinnt þjálfun barnsins þar einu sinni í viku í stað þess að barnið mæti á sjúkraþjálfunarstofu í það skiptið.




 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica