Tannréttingar
Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta kostnaðar vegna tannréttinga ef um alvarleg tilvik eru að ræða.
Ef einstaklingur er með klofinn góm, meðfædda vöntun margra fullorðinstanna eða sambærilega alvarlegan vanda
Kafli IV í reglugerð nr. 698/2010
Í þessum tilvikum greiða Sjúkratryggingar Íslands 95% kostnaðar.
Önnur alvarleg tilvik sem krefjast meðferðar með spöngum
Kafli V í reglugerð nr. 698/2010
Sjúkratryggingar Íslands veita styrk að upphæð 100.000 kr. vegna meðferðar tannréttinga sem krefjast spanga á tennur annars gómsins en 150.000 þurfi spangir á báða gómana. Er þá átt við tannréttingarmeðferð með föstum spöngum á a.m.k. 10 fullorðinstennur hvors góms. Skilyrði er að meðferð með föstum tækjum hafi hafist fyrir 21 árs aldur viðkomandi. Aðeins er greitt til þeirra sem hafa ekki áður fengið styrk vegna tannréttinga. Styrkurinn greiðist í tveimur þremur jöfnum hlutum með tólf mánaða millibili.
Ferðakostnaður vegna tannréttinga
Reglugerð nr. 871/2004
Styrkir eru veittir fyrir tveimur ferðum vegna tannréttinga á ári. Skilyrði er að viðkomandi njóti styrks vegna tannréttinga. Einnig er greiddur styrkur vegna ítrekaðra ferða sökum alvarlegustu tilvikanna.
Sækja þarf um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands fyrirfram, í öllum tilvikum, bæði vegna tannréttinga og ferðastyrkja. Sérfræðingur í tannréttingum fyllir út eyðublaðið "Umsókn um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði vegna tannréttinga - alvarlega tilvik" vegna barna með klofinn góm og sambærileg tilvik en eyðublaðið "Umsókn um styrk sjúkratrygginga vegna kostnaðar við tannréttingar" fyrir aðra umsækjendur. Tannlæknir og sjúklingur/forráðamaður skrifa svo undir og senda til SÍ.
- Tilvísun: Reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar nr. 698/2010
- Reglugerð nr. 871/2004 um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands.
- Næsta skref Skoða gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands vegna tannlækninga
- Næsta skref Umsókn um styrk sjúkratrygginga vegna kostnaðar við tannréttinga (V. kafli reglugerðar nr. 698/2010)
- Næsta skref Umsókn um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði vegna tannréttinga - alvarleg tilvik (IV. kafla reglugerðar 698/2010)
- Tengt efni Um ferðakostnað



