Lífeyrisþegar og aldraðir
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í almennum tannlæknakostnaði lífeyrisþega og aldraðra.
Tannlæknar ákveða sjálfir verð á meðferð á sinni stofu. Sjúkratryggingar Íslands gefa út eigin gjaldskrá sem stofnunin miðar sínar endurgreiðslur við. Ef gjaldskrá tannlæknis er hærri en gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands greiðir einstaklingur mismuninn þar á milli.
Það getur því borgað sig að bera saman verð áður en meðferð hjá tannlækni hefst.
Ef þú ert á ferð eftir lokun þjónustumiðstöðvar er póstkassi við innganginn en þar er hægt að setja umslög með reikningum allan sólarhringinn. Með reikningum þarf að koma skýrt fram hverjum á að greiða.
Það getur því borgað sig að bera saman verð áður en meðferð hjá tannlækni hefst.
| Hlutfall endurgreiðslu er þannig háttað: (Sjá þó fyrirvara hér að ofan) |
|
|---|---|
| Endurgreiðsla til aldraðra og lífeyrisþega sem fá ekki tekjutryggingu |
50% |
| Endurgeiðsla til lífeyrisþega með tekjutryggingu |
75% |
| Endurgreiðsla til lífeyrisþega sem eru langveikir og dveljast á sjúkrastofnunum eða í þjónustuhúsnæði aldraðra |
100% |
Til að fá endurgreiðslu þarf að:
- koma frumritum reikninga til þjónustumiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114, 150 Reykjavík. Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðis þurfa að koma sínum reikningum til umboða.
- veita Sjúkratryggingum upplýsingar um bankareikning hér á vefnum.
Ef þú ert á ferð eftir lokun þjónustumiðstöðvar er póstkassi við innganginn en þar er hægt að setja umslög með reikningum allan sólarhringinn. Með reikningum þarf að koma skýrt fram hverjum á að greiða.
- Næsta skref Senda Sjúkratryggingum Íslands upplýsingar um bankareikning (Skráð í Réttindagátt - mínar síður í flokknum"Mínar stillingar")
- Næsta skref Skoða gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands vegna tannlækninga
- Tengt efni Hafa samband
- Tengt efni Listi yfir umboð



