Börn og ungmenni
Tannlæknar ákveða sjálfir verð á meðferð á sinni stofu. Sjúkratryggingar Íslands gefa hins vegar út eigin gjaldskrá sem stofnunin miðar endurgreiðslur við. Ef gjaldskrá tannlæknis er hærri en gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands greiðir einstaklingur mismuninn þar á milli.
Sjúkratryggingum Íslands er ekki heimilt að taka þátt í kostnaði við ýmsar meðferðir svo sem flúorlökkun barna og unglinga oftar en einu sinni á hverju almanaksári.
Tannlækningar fyrir 17 ára og yngri
Fyrir börn og unglinga endurgreiða Sjúkratryggingar Íslands 75% af gjaldskrá SÍ.sbr ofangreint.
Forvarnarskoðun barna 3ja, 6 og 12 ára barna
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning við fjölda tannlækna um forvarnarskoðanir þriggja, sex og tólf ára barna. Skoðunin er greidd ef hún fer fram meðan börn eru á þessum aldri.
Samkvæmt samningum senda tannlæknar reikninga fyrir forvarnarskoðanir beint til Sjúkratrygginga Íslands án milligöngu sjúklings. SÍ greiðir fyrir skoðunina að fullu.
Börn með umönnunargreiðslur og andlega þroskahamlaðir einstaklingar 17 ára og eldri
Langveik og mikið fötluð börn og andlega þroskahamlaðir einstaklingar, 17 ára og eldri, fá endurgreiddan allan kostnað við almennar tannlækningar samkvæmt gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands. Skilyrði er að börn fái greiðslur samkvæmt 1., 2. og 3. flokki umönnunargreiðslna.
Sérstök tilvik
Meðferð sem Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í að borga fyrir er almenn. Ef þörf er á sérstökum aðgerðum eins og gullfyllingum, brúm og tannplöntum taka Sjúkratryggingar Íslands ekki þátt í kostnaðinum. Þó getur verið undantekning á þessu í sérstökum tilvikum.
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við nauðsynlega tannlæknismeðferð vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa. Endurgreiðslan er 80% samkvæmt gjaldskrá ráðherra.
Á sama hátt endurgreiða Sjúkratryggingar Íslands kostnað vegna endurnýjunar tannaðgerða, sem stofnað var til vegna þessa ákvæðis, þegar endurnýjun er nauðsynleg vegna takmarkaðs endingartíma viðurkenndra efna eða aðferða sem notuð hafa verið í upphafi. Sækja þarf um greiðsluþátttöku til Sjúkratrygginga Íslands áður en meðferð, önnur en bráðameðferð, fer fram. Fylla þarf út umsókn um þátttöku í kostnaði vegna tannlækninga.Bæði tannlæknir og sjúklingur/forráðamaður skrifa undir umsóknina, sem tannlæknir útbýr fyrir sjúklinginn.
Tanntjón af völdum slysa fæst aðeins bætt ef tjónið fæst ekki greitt af þriðja aðila, svo sem tryggingafélagi eða sjúkrasjóði. Um tanntjón í vinnuslysum gilda reglur slysastrygginga.
- Tilvísun Reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar nr. 698/2010
- Tilvísun Rammasamningur SÍ og tannlækna vegna forvarnarskoðunar 3ja, 6 og 12 ára barna
- Framlenging á rammasamningi SÍ og tannlækna vegna forvarnarskoðunar barna til 31. desember 2011
- Næsta skref Er minn tannlæknir með samning við Sjúkratryggingar Íslands um forvarnarskoðun?
- Næsta skref Hvað þarf að gera til að fá endurgreiðslu?
- Næsta skref Senda Sjúkratryggingum Íslands upplýsingar um bankareikning (Skráð í Réttindagátt - mínar síður í flokknum"Mínar stillingar")
- Næsta skref Skoða gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands vegna tannlækninga
- Næsta skref Eyðublað Umsókn um þátttöku í kostnaði vegna tannlækninga
- Tengt efni Hafa samband
- Tengt efni Listi yfir umboð
- Tengt efni Lesa um umönnunargreiðslur. Vefur Tryggingastofnunar
- Tengt efni Lesa um slysatryggingar



