Icelandic Health Insurance

Tannlækningar

Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða hluta kostnaðar vegna tannlækninga fyrir aldraða, lífeyrisþega og börn.

Til að fá endurgreiðslu þarf að:

Tekið er við reikningum í pósti eða í afgreiðslu, þar sem þeir eru settir í sérstakt umslag.

Ef þú ert á ferð eftir lokun þjónustumiðstöðvar er póstkassi við innganginn en þar er hægt að setja umslög með reikningum allan sólarhringinn. Með reikningum þarf að koma skýrt fram hverjum á að greiða.

Verð á meðferð

Tannlæknar ákveða sjálfir verð á meðferð á sinni stofu. Heilbrigðisráðuneyti gefur út eigin gjaldskrá sem Sjúkratryggingar Íslands miða sínar endurgreiðslur við. Ef gjaldskrá tannlæknis er hærri en gjaldskrá ráðuneytis greiðir einstaklingur mismuninn þar á milli.

Samkvæmt reglum Samkeppnisstofnunar á gjaldskrá tannlækna að vera sýnileg til að auðvelda samanburð.

Fyrir aðra en lífeyrisþega og börn

Fyrir alla aðra taka Sjúkratryggingar Íslands aðeins þátt í kostnaði ef meðferðin er nauðsynleg vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma og slysa. Einnig eru veittir styrkir vegna tannlækninga andlega þroskahamlaðra einstaklinga, en ákveðnar reglur gilda um þau tilvik.



 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica