Meira um sjúkradagpeninga

Hverjir eiga rétt á sjúkradagpeningum?

Launþegar og atvinnurekendur

Óskertir dagpeningar greiðast þeim sem fella niður heils dags vinnu. Vinna telst öll bein tekjuöflun, jafnt launþega sem ativnnurekanda.Hálfir dagpeningar greiðast þeim sem stunduðu hálfs dags vinnu eða meira fyrir veikindin. Sé felld niður launuð vinna sem nemur minna en hálfs dags starfi greiðast dagpeningar sem nema 75% af launum, þó ekki meira en hálfir dagpeningar. Sá sem vann fulla vinnu fyrir veikindin og tekur upp allt að hálfs dags starf í afturbata getur fengið hálfa dagpeninga í allt að þrjá mánuði. Dagpeningar greiðast ekki starfsmönnum í verkfalli nema réttur til þeirra hafi stofnast fyrir verkfall.

Sjálfstætt starfandi

Við greiðslu sjúkradagpeninga til þeirra sem eru sjálfstætt starfandi er miðað við reiknað endurgjald sem greitt hefur verið tryggingagjald af. Þegar viðkomandi verður tekjulaus vegna veikinda þarf að tilkynna það til skattyfirvalda.

Heimavinnandi

Falli störf heimavinnandi fólks á eigin heimili alveg niður vegna veikinda eru greiddir hálfir sjúkradagpeningar. Auk þess er heimilt að greiða allt að helmingi dagpeninga til viðbótar vegna útgjalda við heimilishjálp sem veitt er af öðrum en heimilismönnum. Greitt er samkvæmt kvittuðum reikningi. Á reikningi skal vera kennitala og heimilisfang þess sem greiðsluna fær. Alls verður greiðslan þó ekki hærri en óskertir dagpeningar.

Námsmenn

Tekjulaust námsfólk 18 ára og eldra getur átt rétt á sjúkradagpeningum að uppfylltum nánari skilyrðum laganna ef veikindi valda töfum á að námsáfangi náist.

Fæðing í heimahúsi

Móðir sem fæðir barn í heimahúsi á rétt á fullum sjúkradagpeningum í 10 daga frá fæðingu barns.

Einstaklingar í vímuefnameðferð

Sjúkradagpeningar eru einungis greiddir til áfengissjúklinga fyrir það tímabil sem þeir eru í meðferð á viðurkenndri stofnun vegna áfengisneyslu sinnar. Skilyrði er að meðferð taki í að minnsta kosti 21 dag. Þetta gildir bæði um inniliggjandi sjúklinga og þá sem eru í meðferð á dagdeildum. Göngudeildarmeðferð er undanskilin og fellur ekki hér undir.

Nánar um greiðslur sjúkradagpeninga

  • Upphæð dagpeninga fer eftir gildandi reglugerð hverju sinni. Sjá upphæð í skjali undir Tengt efni hér til hliðar
  • Sjúkradagpeningar greiðast afturvirkt frá 15. veikindadegi ef umsækjandi er óvinnufær í að minnsta kosti 21 dag.
  • Launþegar sem fá greidd laun í veikindum samkvæmt kjarasamningum fá sjúkradagpeninga greidda þegar þau laun falla niður.
  • Við ákvörðun dagpeninga er að jafnaði miðað við störf sjúklings síðustu tvo mánuði fyrir veikindin.
  • Sjúkradagpeningar eru greiddir tvo mánuði aftur í tímann frá því að umsókn berst og öll nauðsynleg gögn. Heimilt er að lengja þetta tímabil í allt að sex mánuði ef réttur viðkomandi er ótvíræður.
  • Þrátt fyrir 18 ára aldurskilyrði laganna er þó heimilt að greiða sjúkradagpeninga til 16-17 ára.
  • Fullir sjúkradagpeningar eru greiddir þeim sem leggja niður heils dags launaða vinnu og ef fullar atvinnuleysisbætur falla niður.
  • Hálfir sjúkradagpeningar eru greiddir þeim sem leggja niður a.m.k. hálfs dags launaða vinnu og ef atvinnuleysisbætur falla niður.
  • Sá sjúklingur sem hefur unnið heils dags launavinnu og fer aftur á vinnumarkaðinn eftir veikindi og vinnur þá í afturbata allt að hálfs dags vinnu, á rétt á hálfum dagpeningum meðan svo stendur á en þó aldrei lengur en í þrjá mánuði.
  • Sjúkradagpeningar eru greiddir fyrir alla daga vikunnar. Sjúkrahúsvist skerðir ekki greiðslur sjúkradagpeninga. Dagpeninga (sjúkra- og slysadagpeninga) má greiða í allt að 52 vikur á 24 mánuðum. Heimilt er framlengja greiðslur um skamman tíma í undantekningartilvikum.

Hvernig er greitt?

Lagt er inn á bankareikning umsækjanda.

Viðbót vegna barns eða barna

Greidd er barnaviðbót auk sjúkradagpeninga til þeirra sem hafa á framfæri sínu börn undir 18 ára aldri eða greiða meðlag.

Sjúkradagpeningar og aðrar greiðslur almannatrygginga

Örorkustyrkþegar og lífeyrisþegar með skertan lífeyri geta fengið hluta sjúkradagpeninga greidda ef viðkomandi hefur lagt niður launaða vinnu. Sjúkradagpeningar greiðast ekki fyrir sama tímabil og slysadagpeningar. Sjúkradagpeningar greiðast ekki samhliða greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica