Sjúkradagpeningar

Sjúkradagpeningar eru greiddir til fólks sem er óvinnufært vegna veikinda sinna og fær þess vegna engin laun.

Til að fá sjúkradagpeninga greidda þarf umsækjandi að hafa lagt niður vinnu og vera hættur að fá launatekjur. Skilyrði er að viðkomandi sé algjörlega óvinnufær. Upphæð dagpeninga kemur fram í skjali hér til hliðar.

Hvernig sæki ég um sjúkradagpeninga?

Fylla þarf út umsókn um sjúkradagpeninga og skila til þjónustumiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114, 150 Reykjavík. Ýmis fylgigögn þurfa að berast með umsókninni (sjá hér fyrir neðan) og vinnuveitandi verður að skrifa undir vottorð sem fylgir umsóknareyðublaðinu. 

Einnig þarf að skila inn skattkorti, þar sem sjúkradagpeningar eru staðgreiðsluskyldir.

Við bendum öllum á að lesa vel þær upplýsingar um greiðslur og skilyrði sjúkradagpeninga sem eru hér á vefsíðunni áður en sótt er um.


 

Nauðsynleg fylgigögn

  • Sjúkradagpeningavottorð sem læknir fyllir út.
  • Vottorð launagreiðanda/atvinnurekanda ef umsækjandi er launþegi. Vottorðið fylgir eyðublaðinu Umsókn um sjúkradagpeninga. Þar kemur fram síðasti vinnudagur, starfshlutfall og hvenær launatekjur falla niður.
  • Kvittaðir reikningar sem sýna vinnutíma, greidd laun og kennitölu ef sótt er um greiðslu fyrir heimilishjálp.
  • Vottorði frá skóla vegna forfalla frá námi ef umsækjandi er námsmaður og veikindi valda því að viðkomandi getur ekki lokið önn/áfanga/prófi
  • Vottorð frá ljósmóður vegna heimafæðingar.

Frekari skilyrði:

  • Umsækjandi er 18 ára eða eldri. Þrátt fyrir þetta er ákvæði sem heimilar greiðslu sjúkradagpeninga til 16-17 ára.
  • Viðkomandi fær hvorki elli- eða örorkulífeyri. Þeir lífeyrisþegar sem eru með skertan grunnlífeyri geta þó átt rétt á sjúkradagpeningum.
  • Eins og með alla styrki frá Sjúkratryggingum Íslands verður umsækjandi að vera sjúkratryggður.

Athugið sjúkrasjóði stéttarfélaga

Flest stéttarfélög starfrækja sjúkrasjóði sem styrkja sjóðfélaga þegar veikindi eða slys ber að höndum. Flestir sjúkrasjóðir greiða félagsmönnum sjúkradagpeninga til viðbótar við sjúkradagpeninga almannatrygginga. Nánari upplýsingar fást hjá stéttarfélögum.



 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica