Sálfræðiþjónusta við börn

Rammasamningur hefur verið framlengdur milli Sjúkratrygginga Íslands og neðangreindra sálfræðinga um sálfræðiþjónustu við börn með alvarlegar geð- hegðunar- og þroskaraskanir. Gildir framlengingin frá og með 1. janúar 2011.

Til að fá niðurgreiðslu vegna kostnaðar verður að liggja fyrir tilvísun þverfaglegs greiningarteymis til sálfræðings. Viðkomandi sálfræðingur verður að starfa samkvæmt samningi Sjúkratrygginga Íslands og Sálfræðingafélags Íslands.

Greiningarteymi sem gert hafa samkomulag við velferðarráðuneytið um tilvísanir starfa á:

  • Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL)
  • Þroska og hegðunarstöð
  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands
  • Greiningar-/ráðgjafastöðvar ríkisins (GR)

Fjöldi meðferðatíma í tilvísun getur verið að hámarki tíu tímar og gildir tilvísunin í sex mánuði frá útgáfudegi. Hafi tilvísun ekki verið gefin út eða er eldri en sex mánaða taka Sjúkratryggingar ekki þátt í kostnaði við þjónustuna.

Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta kostnaðar í samræmi við reglugerð 1266/2007 og rammasamning Sjúkratrygginga og sálfræðinga. Greiðsluhluti sjúklings samkvæmt reglugerðinni er 20% af verði við komuna og  10% ef sjúklingur er með afsláttarkort.

Í hnotskurn

  • Greiningarteymi gefur út tilvísun sem er að hámarki tíu tímar og gildir í 6 mánuði frá útgáfudegi.
  • Aðeins er greiddur greiðsluhluti barns hjá sálfræðingi ef tilvísun er fyrir hendi til sálfræðings sem starfar samkvæmt rammasamningi milli Sjúkratrygginga og sálfræðinga.

Þeir sálfræðingar sem starfa samkvæmt samningi eru:

Jón Sigurður Karlsson

Skúlatún 6

Reykjavík

Kolbrún Baldursdóttir

Suðurlandsbraut 6

Reykjavík

Íris Birgis Stefánsdóttir

Sálfræðistofunni  Klapparstíg 25-27

Reykjavík.



 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica